Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 6. mgr. 37. gr. laga nr. 20/1992 — Barnalög
A krafðist miskabóta á þeim grundvelli að málsmeðferð barnaverndarnefndar R hefði brotið gegn réttindum hennar samkvæmt stjórnsýslulögum og stjórnarskrárbundnum rétti hennar til friðhelgi einkalífs og fjölskyldu. Talið var að nefndin hefði ekki gætt andmælaréttar A sem skyldi við málsmeðferð á árinu 2002, en að aðrir annmarkar væru ekki á meðferð málsins þannig að skilyrði skaðabótalaga til greiðslu miskabóta væru uppfyllt. Ekki var talið unnt að líta framhjá því að A hefði með ýmsum hætti torveldað rannsókn málsins og tálmað umgengni dóttur sinnar við föður. Þá var ekki fallist á að samskipti starfsmanna R við A hefðu verið meiri en tilefni var til þannig að í þeim fælist brot gegn friðhelgi einkalífs, heimilis eða fjölskyldu hennar. Var R því sýknað af kröfu hennar.
Stefndi var sýkn af miskabótakröfu vegna málsmeðferðar barnaverndarnefndar, en nefndin hafði veitt sýslumanni umsögn í umgengnisréttarmáli.