Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

6 dómar fundust

Lagagrein: 93. gr. laga nr. 19/1991 — Lög um meðferð opinberra mála

Landsréttur birt 4. júní 2021

60/2020

Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason saksóknari) gegn Reyni Strandberg Arnarsyni (Gísli Tryggvason lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

R var sakfelldur fyrir hylmingu og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna auk annarra umferðarlagabrota. Í samræmi við 1. mgr. 2. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 var með dómi Landsréttar meðal annars dæmt um umferðarlagabrot R eftir nýjum umferðarlögum nr. 77/2019 sem tóku gildi eftir að hinn áfrýjaði dómur féll. Refsing R var ákveðin fangelsi í 30 daga en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var honum gert að greiða sekt í ríkissjóð auk þess sem hann var sviptur ökurétti.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. mars 2010

E-8588/2009

X (Brynjar Níelsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Sigurður Gísli Gíslason hrl)

Í var sýknað af kröfu X um bætur vegna ólögmætrar handtöku, líkamsleitar og vistunar í fangaklefa um nokkurra klukkustunda skeið. Ekki var fallist á að handtaka og vistun í fangaklefa hafi verið umfram heimildir lögreglu, en talið að umrædd líkamsleit hafi verið ólögmæt og óþörf eins og á stóð. Bótakrafa X var hins vegar fyrnd þegar málið var höfðað og var Í því sýknað af kröfu hans.

Hæstiréttur birt 18. apríl 2008

213/2008

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn X (Stefán Karl Kristjánsson hdl)
Lykilorð: Kærumál. Líkamsrannsókn.

Fallist var á að skilyrði 1. mgr. 92. gr., sbr. 1. mgr. 93. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála væru uppfyllt til að L væri heimilt að taka munnvatnssýni frá X í þágu lögreglurannsóknar.

Hæstiréttur birt 5. febrúar 2004

237/2003

Íslenska ríkið (Einar Karl Hallvarðsson hrl) gegn Franklín Kristni Steiner, Franklín Kristinn Steiner og Abraham Jóab Önnuson (Jón Magnússon hrl)

Staðfest var niðurstaða héraðsdóms um að F ætti rétt á bótum vegna ólögmætrar handtöku en bótafjárhæð var lækkuð. Kröfu A var vísað sjálfkrafa frá Hæstarétti þar sem hann hafði ekki áfrýjað málinu fyrir sitt leyti innan lögmælts frests.

Hæstiréttur birt 30. nóvember 2000

201/2000

X (Björn Ólafur Hallgrímsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)
Lykilorð: Handtaka. Miskabætur. Gjafsókn.

X var handtekinn, grunaður um kynferðisbrot gegn þroskaheftri konu. Tæpum sólarhring eftir handtökuna var honum sleppt, enda brostinn grundvöllur fyrir sakargiftum á hendur honum. Hann krafðist miskabóta á þeim forsendum að honum hefði, fyrir yfirsjón lögreglu, verið gert að þola niðurlægjandi rannsókn og verið haldið í gæslu að ósekju í nærfellt sólarhring. Héraðsdómur hafnaði kröfu X um bætur, en Hæstiréttur dæmdi honum 30.000 krónur í miskabætur þar sem unnt þótti að fallast á það með honum að hann hefði verið sviptur frelsi lengur en efni stóðu til.