Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lagagrein: 2. mgr. 35. gr. laga nr. 19/1991 — Lög um meðferð opinberra mála

Héraðsdómur Suðurlands birt 18. apríl 2007

S-39/2007

Ákæruvaldið (Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður) gegn Guðmundi Bárðarsyni (Sigurður Sigurjónsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði dæmdur í eins mánaðar fangelsi skilorðsbundið til tveggja ára, til greiðslu 70.000 króna sektar, til sviptingar ökuréttar í sex mánuð, til að sæta upptöku á fíkniefnum og greiðslu alls sakarkostnaðar. Ákærða hafði margoft verið gerð refsing fyrir brot á lögum um ávana- og fíkniefni og var það metið honum til refsiþyngingar.

Hæstiréttur birt 14. október 1999

194/1999

Ákæruvaldið (Sigríður Jósefsdóttir saksóknari) gegn Ólafi Ólafssyni (Hallvarður Einvarðsson hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

Ó var ákærður fyrir að hafa svikið allháar fjárhæðir undan tekju- og virðisaukaskatti auk þess að hafa látið hjá líða að standa skil á innheimtum virðisaukaskatti. Var hann dæmdur til skilorðsbundinnar refsivistar auk þess sem honum var gerð sektarrefsing. Hvorki var talið tilefni til að álykta að andlegt heilsufar hans á þeim tíma sem brotin voru framin hefði verið með þeim hætti að 1. mgr. 16 gr. alm. hgl. gæti átt við, né að unnt væri að fella niður refsingu með stoð í 63. gr. sömu laga.