Héraðsdómur Suðurlands
Dómur 18. apríl 2007.
Mál nr. S-39/2007:
S-039/2007:
Ákæruvaldið
(Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður)
gegn
Guðmundi Bárðarsyni
svofelldur
d ó m u r :
(Sigurður Sigurjónsson hrl)
Lykilorð
Fangelsi og sekt. Vörslur. Ávana- og fíkniefni. Ítrekun. Ökuréttarsvipting.
Útdráttur
Ákærði dæmdur í eins mánaðar fangelsi skilorðsbundið til tveggja ára, til greiðslu 70.000 króna sektar, til sviptingar ökuréttar í sex mánuð, til að sæta upptöku á fíkniefnum og greiðslu alls sakarkostnaðar. Ákærða hafði margoft verið gerð refsing fyrir brot á lögum um ávana- og fíkniefni og var það metið honum til refsiþyngingar.
Mál þetta, sem þingfest var þann 22. febrúar sl., og dómtekið 11. apríl sl., var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Selfossi, dagsettri 1. febrúar 2007, á hendur Guðmundi Bárðarsyni, kt. 000000-0000, Háengi 14, Selfossi ,, fyrir fíkniefna- og umferðarlagabrot
I.
með því að hafa síðdegis miðvikudaginn 8. nóvember 2006 haft í vörslu sinni 0,65 grömm af hassi og 2,93 grömm af amfetamíni, sem lögreglan fann við húsleit á heimili ákærða umrætt sinn.
Telst brot ákærða varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 60/1980, 75/1982, 13/1985, 68/2001 og 2. gr. sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001 með síðari breytingum.
II.
með því að hafa, aðfaranótt fimmtudagsins 23. nóvember 2006 ekið bifreiðinni AR- 582 frá Reykjavík, austur Suðurlandsveg áleiðis á Selfoss, óhæfur til að stjórna bifreiðinni örugglega þar sem hann var undir áhrifum amfetamíns og tetrahýdrókannabínóls, uns bifreiðin hafnaði utan vegar og valt í Hveradalabrekku, sveitarfélaginu Ölfusi.
Telur ákæruvaldið brot ákærða varð við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. umferðarlaga nr. 50/1987 sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006, sbr. 1. mgr. 100. gr. nefndra umferðarlaga.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta sviptingu ökuréttar samkvæmt 101. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. lög nr. 44/1993, lög nr. 57/1997, lög nr. 23/1998, lög nr. 132/2003, lög nr. 84/2004 og lög nr. 66/2006 og til að sæta upptöku á haldlögðum fíkniefnum sbr. ákærulið I (efnaskrá nr. 10622), samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.“
Ákærði kom fyrir dóminn við þingfestingu málsins ásamt Lúðvík Kaaber héraðsdómslögmanni, sem skipaður var verjandi ákærða. Játaði ákærði brot samkvæmt ákærulið I en neitaði sök varðandi síðari ákæruliðinn. Var málinu frestað til aðalmeðferðar þann 26. mars 2007. Í það þinghald mætti ákærði einn og tilkynnti dóminum að hann óskaði ekki eftir aðstoð verjanda síns lengur. Þá sendi verjandi hans réttinum rafbréf þar sem hann útskýrði að ákærði óskaði eftir því að annast framhald málsins sjálfur og yrði hann því að segja sig frá málinu en krefðist þóknunar fyrir starfa sinn. Ákærði er sviptur lögræði og með vísan til 2. mgr. 35. gr. laga nr. 19/1991 skipaði dómarinn Sigurð Sigurjónsson hæstaréttarlögmann verjanda hans. Var aðalmeðferð ákveðin þann 11. apríl 2007 og mætti ákærði þá með skipuðum verjanda sínum fyrir dóm. Óskaði ákærði eftir því að breyta framburði sínum og játaði sök varðandi ákærulið II. Er játning hans í samræmi við önnur gögn málsins og verður hann sakfelldur fyrir brot sín en þau eru í ákæru rétt færð til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar.
Farið var með málið samkvæmt ákvæðum 125. gr. laga nr. 19/1991 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Um málavexti vísast til ákæruskjals. Samkvæmt sakavottorði hefur ákærða tíu sinnum áður verið gerð refsing fyrir brot á lögum um ávana- og fíkniefni, þar af sex sinnum áður frá árinu 2005 fram að því broti sem ákærði er sakfelldur fyrir nú. Auk þess hefur ákærði frá árinu 1996 tvisvar gerst brotlegur við umferðarlög og árið 2003 var ákvörðun refsingar frestað skilorðsbundið í eitt ár fyrir brot gegn 232. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Í málinu liggur fyrir matsgerð frá Háskóla Íslands, rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði. Kemur þar fram að í blóði ákærða mældist amfetamín 275 ng/ml og tetrahýdrókannabínól 0,6 ng/ml, þegar lögreglan hafði afskipti af ákærða.
Með hliðsjón af löngum brotaferli ákærða og síendurteknum brotum á lögum um ávana- og fíkniefni þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í einn mánuð. Fresta skal þó fullnustu refsingar og hún niður falla að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá er ákærða gert að greiða 70.000 króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms að telja en sæti ella fangelsi í sex daga. Þá skal ákærði sviptur ökurétti í sex mánuði frá birtingu dóms að telja.
Með vísan til 165., sbr. 164. gr., laga um meðferð opinberra mála skal ákærða gert að greiða allan sakarkostnað sem er vegna rannsóknar á blóði ákærða og matsgerðar, 157.239 krónur, auk þóknunar skipaðra verjenda sinna, Lúðvíks Kaaber héraðsdómslögmanns, 56.000 krónur, og Sigurðar Sigurjónssonar hæstaréttarlögmanns, 56.000 krónur.
Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Guðmundur Bárðarson, skal sæta fangelsi í einn mánuð frá birtingu dóms að telja, en fresta skal fullnustu refsingar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Ákærði greiði 70.000 króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dóms að telja en sæti ella fangelsi í sex daga.
Ákærði skal sviptur ökurétti í sex mánuði frá birtingu dóms að telja.
Ákærði sæti upptöku á 0,65 grömmum af hassi og 2,93 grömmum af amfetamíni.
Ákærði greiði allan sakarkostnað 269.239 krónur, þar með talda þóknun skipaðra verjenda sinna, Lúðvíks Kaaber héraðsdómslögmanns og Sigurðar Sigurjónssonar hæstaréttarlögmanns, 56.000 krónur til hvors um sig. Hefur þá verið tekið tillit til virðisaukaskatts.
Ástríður Grímsdóttir.