Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 3. gr. laga nr. 19/1991 — Lög um meðferð opinberra mála

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 27. júní 2007

S-111/2007

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson fulltrúi) gegn X (Gunnar Sólnes hrl)
Lykilorð: Líkamsárás. Skaðabætur.
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Kona sakfelld fyrir líkamsárás, en refsing felld niður á grundvelli 4. tl. 1. mgr., sbr. 2. mgr. 74. gr. almennra hegningarlaga. - Hún var dæmd til greiðslu skaðabóta.

Hæstiréttur birt 7. febrúar 2001

9/2001

Heilsa ehf (Stefán Geir Þórisson hrl) gegn tollstjóranum í Reykjavík (Skarphéðinn Þórisson hrl)

Kærumál. Hald. Upptaka. Áfengislög. Einkamál. Frávísunarúrskurður felldur úr gildi. H kærði úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem máli hans á hendur T var vísað frá dómi. Í málinu krafðist H ógildingar á haldlagningu og síðari upptöku tollstjóra á vökva sem notaður er til matargerðar, en inniheldur nokkurt áfengi. Krafðist H einnig skila á vökvanum. Talið var að H bæri réttur til þess að fá úrlausn um réttindi þau, er kröfugerð hans lyti að. Ekki var fallist á að með mál, er höfðað væri af einkaaðila til ógildingar á haldlagningu og upptöku eigna og skila á þeim, með þeim hætti sem gert væri í málinu, bæri að fara eftir lögum um meðferð opinberra mála nr. 19/1991. Talið var að með mál H ætti þess í stað að fara eftir reglum laga um meðferð einkamála nr. 91/1991. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdómara að taka málið til efnismeðferðar.