Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
7 dómar fundust
Lagagrein: 124. gr. laga nr. 19/1991 — Lög um meðferð opinberra mála
Ákæruvaldið (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn
Maríu Sigurrós Ingadóttur
Kona um tvítugt var sakfelld fyrir brot gegn 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga með því að hafa veist að A og greitt henni höfuðhögg. Með tilliti til atvika máls var refsing ákveðin 40.000 króna sekt.
Ákæruvaldið (Ásgeir Eiríksson fulltrúi) gegn
Jóni Þór Eymundssyni
J var sakfelldur fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Honum var gerð skilorðsbundin fangelsisrefsing og gert að sæta upptöku á fíkniefnum. Kröfu ákæruvalds um upptöku jafnvirðis ávinnings af sölu fíkniefna var hafnað.
Ákærði var dæmdur til greiðslu sektar fyrir ólögmætar fuglaveiðar.
Ákæruvaldið (
Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Ellert Hannessyni (
Hilmar Ingimundarson hrl)
E var dæmdur í 6 mánaða fangelsi fyrir líkamsárás og var helmingur refsingarinnar skilorðsbundinn til þriggja ára.
Ákæruvaldið (Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari) gegn
Guðna Elíassyni (enginn)
Ríkissaksóknari kærði viðurlagaákvörðun sem G gekkst undir 23. október 2002 til Hæstaréttar. Í rökstuðningi fyrir kærunni vísaði hann til þess að við meðferð málsins hafi sækjanda og héraðsdómara ekki verið kunnugt um að G hafi gengist undir viðurlög 17. október 2002 hjá sýslumanninum á Selfossi, enda hafi vitneskja um það ekki fengist fyrr en með tilkynningu til sakaskrár í nóvember sama árs. Málinu var vísað frá Hæstarétti þar sem þriggja sólarhringa kærufrestur var löngu liðinn, en vitneskja ríkissaksóknara um ákvörðun viðurlaga G hafi legið fyrir í beinu framhaldi af tilkynningu um hina kærðu ákvörðun til sakaskrár í lok október 2002.
Ákæruvaldið (Bogi Nilsson ríkissaksóknari) gegn
Guðmundi Sveinbirni Brynjólfssyni (enginn)
Ákæruvaldið kærði til Hæstaréttar viðurlagaákvörðun héraðsdómara í máli þess gegn G. Hæstiréttur vísaði málinu frá þar sem kæran barst að liðnum þriggja sólarhringa kærufresti.
Ákæruvaldið (
Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Ólafi Páli Rafnssyni (
Kristján Stefánsson hrl)
Ó var ákærður fyrir áfengis- og tolllagabrot með því að hafa smyglað áfengi og vindlingum til landsins. Taldi hann ákvörðun héraðsdóms um fésekt of háa, en með vísan til 3. mgr. 159. gr. laga 19/1991 voru ekki talin efni til að breyta henni Var niðurstaða héraðsdóms því staðfest og Ó dæmdur til greiðslu sektar og upptöku smyglvarningsins.