Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

4 dómar fundust

Lagagrein: 122. gr. laga nr. 19/1991 — Lög um meðferð opinberra mála

Hæstiréttur birt 16. mars 2007

92/2007

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson saksóknari) gegn Einari Benediktssyni (Gísli Baldur Garðarsson hrl), Geir Magnússyni (Ragnar Tómas Árnason hdl) og Kristni Björnssyni (Ragnar Halldór Hall hrl)

Á kærði úrskurð héraðsdóms, þar sem ákæru á hendur E, G og K var vísað frá dómi. Talið var að fyrirkomulag samkeppnislaga hefði ekki verið nógu skýrt um meðferð máls ef grunur vaknaði um að brotið hefði verið gegn lögunum, og þar af leiðandi óskýrt hvernig með skyldi fara ef tilefni þætti til opinberrar rannsóknar jafnhliða meðferð samkeppnisyfirvalda og hvenær beita ætti refsiviðurlögum. Átti það meðal annars við þá stöðu E, G og K að taka þátt í viðræðum og samningum við Samkeppnisstofnun og veita henni upplýsingar, en fella á sama tíma á sig sök með því að málið var síðar tekið til refsimeðferðar. Var því ekki talið nægjanlega fram komið að í lögreglurannsókninni, sem fór fram í kjölfar meðferðar samkeppnisyfirvalda, hefðu þeir, eins og þeirri rannsókn var hagað, fengið notið þeirra réttinda sakborninga, sem mælt er fyrir um í 70. gr. stjórnarskrárinnar nr. 33/1944 og meginreglum laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Yrði því ákæra ekki reist á þeirri lögreglurannsókn og var niðurstaða héraðsdóms því staðfest.

Hæstiréttur birt 25. október 2006

546/2006

Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson fulltrúi) gegn X (sjálfur)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Héraðsdómur vísaði máli ákæruvaldsins á hendur X frá dómi þar sem talið var að rannsóknargögn væru ekki í samræmi við verknaðarlýsingu ákærunnar. Ekki var fallist á að þetta ætlaða ósamræmi ætti að leiða til frávísunar málsins þar sem um atriði væri að ræða sem kæmi til athugunar við efnislega meðferð málsins, þegar dómari legði mat á hvort ákæruvaldið hefði uppfyllt sönnunarskyldu sína. Var úrskurðurinn því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdómara að taka málið til efnislegrar meðferðar.

Hæstiréttur birt 27. ágúst 2001

288/2001

Ákæruvaldið (Páll Björnsson sýslumaður) gegn Ásbirni Þorvaldssyni, Bjarka Kárasyni, Guðlaugi Helga Valssyni og Snorra Einarssyni (enginn)

Talið var að í ákæru væri nægilega greint frá þeim efnisatriðum sem um ræddi í 116. gr. laga nr. 19/1991. Á þessu stigi málsins væru ekki að öðru leyti annmarkar á reifun þess af hendi ákæruvaldsins. Frávísunarúrskurður héraðsdóms var því felldur úr gildi og lagt fyrir dómara að taka málið til efnismeðferðar.