Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

8 dómar fundust

Lagagrein: 109. gr. laga nr. 19/1991 — Lög um meðferð opinberra mála

Hæstiréttur birt 9. október 2006

521/2006

Ríkislögreglustjóri (Jón H. Snorrason saksóknari) gegn X (Sveinn Andri Sveinsson hrl)
Málaflokkur: Vátryggingaréttur

Felldur var úr gildi úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta farbanni á grundvelli 110. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, sbr. b. lið 1. mgr. 103. gr. sömu laga, en í þess stað var honum gert að setja tryggingu samkvæmt 109. gr. laganna fyrir því að hann mætti til skýrslugjafar hjá lögreglu innan þess tíma sem farbanninu var ætlað að gilda .

Hæstiréttur birt 11. september 2006

486/2006

Ríkislögreglustjóri (Jón H. Snorrason saksóknari) gegn X (Sveinn Andri Sveinsson hrl)
Lykilorð: Kærumál. Farbann.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X yrði áfram bönnuð för úr landi á grundvelli 110. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, sbr. b. lið 1. mgr. 103. gr. sömu laga.

Hæstiréttur birt 28. ágúst 2002

398/2002

Lögreglustjórinn í Reykjavík (Egill Stephensen saksóknari) gegn X (Hilmar Ingimundarson hrl)

Hæstiéttur staðfesti úrskurð héraðsdóms um að aflétt yrði takmörkunum á aðgangi X að fjölmiðlum á meðan gæsluvarðhaldsvist hans stæði, sbr. e. lið 1. mgr. 108. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

Hæstiréttur birt 28. ágúst 2002

397/2002

Lögreglustjórinn í Reykjavík (Egill Stephensen saksóknari) gegn X (Magnús Björn Brynjólfsson hdl)

Hæstiéttur staðfesti úrskurð héraðsdóms um að aflétt yrði takmörkunum á aðgangi X að fjölmiðlum á meðan gæsluvarðhaldsvist hans stæði, sbr. e. lið 1. mgr. 108. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

Hæstiréttur birt 4. mars 2002

99/2002

Lögreglustjórinn í Reykjavík (Egill Stephensen saksóknari) gegn X (Sigurmar Kristján Albertsson hrl)

Kærumál. B. liður 1. mgr. og 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991. Gæsluvarðhaldsúrskurður felldur úr gildi. Krafist var framlengingar gæsluvarðhaldsvistar X á grundvelli b. liðar 1. mgr. og 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála en X var grunuð um aðild að broti sem varðaði innflutning á umtalsverðu magni af hættulegum fíkniefnum. Ekki var fallist á að þörf væri á gæsluvarðhaldi yfir X vegna þeirra ástæðna sem um ræðir í b. lið 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991, eða að hlutur hennar í brotinu væri slíkur, að gæsluvarðhaldsvist hennar yrði framlengd á grundvelli 2. mgr. 103. gr. sömu laga.