Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 32. gr. laga nr. 19/1964 — Skipulagslög

Hæstiréttur birt 25. febrúar 2010

334/2009

Kópavogsbær (Þórður Clausen Þórðarson hrl) gegn Halldóri Á. Arnórssyni, Þórarni Arnórssyni, Sjöfn Arnórsdóttur og Guðrúnu E. Halldórsdóttur (Ragnar Aðalsteinsson)

H, Þ, S og G, leigjendur að tveimur spildum úr landi jarðarinnar Vatnsenda í Kópavogi, höfðuðu mál gegn K og reistu kröfu sína á því að á árinu 1998 hefði K tekið eignarnámi hluta af landinu á svokölluðu norðursvæði. Í kjölfar þess hefði K með nýju aðal- og deiliskipulagi gert breytingu á landnotkun á svæðinu. Því hefði þannig verið breytt úr frístundabyggð í íbúabyggð og tæki nýtt skipulag meðal annars til leigulóðanna tveggja. Með nýju skipulagi og raski, sem af þessu hlytist, hefði K gert lóðirnar ónothæfar fyrir H, Þ, S og G og bæri bótaábyrgð á þeim gerðum sínum. K mótmælti því að lóðir H, Þ, S og G væru á þessu svæði, en fyrir því bæru þau sjálf sönnunarbyrði. Reisti hann málatilbúnað sinn einkum á því að H, Þ, S og G hefði hvorki tekist að sanna hvar lóðir þeirra væru né að þær væru innan lögsögumarka K. Var fallist á með H, Þ, S og G að nægilega væri sannað að leigulóðir þeirra lægju í norðanverðu Vatnsendahvarfi innan lögsögumarka K. Allt land á því svæði, sem lóðirnar gætu verið innan, væri í eigu K eftir eignarnám sem gert var 1992. Var því fallist á viðurkenningarkröfu H, Þ, S og G um bótaskyldu K vegna skerðingar á lóðarleiguréttindum þeirra.

Héraðsdómur Reykjaness birt 21. apríl 2009

E-2501/2008

Halldór Á. Arnórsson, Þórarinn Arnórsson, Sjöfn Arnórsdóttir og Guðrún E. Halldórsdóttir (Arnar Þór Jónsson hdl) gegn Kópavogsbæ (Þórður Clausen Þórðarson hrl)

Viðurkennd var bótaskylda stefnda vegna þeirrar skerðingar á lóðarleigurétti stefnenda, að lóðunum Vatnsendabletti 381 og 382, sem þau hafa orðið fyrir vegna skipulags og uppbyggingar svonefnds Hvarfahverfis í Kópavogsbæ.