Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

15 dómar fundust

Lagagrein: 4. gr. laga nr. 17/1996 — Lög um gatnagerðargjald

Hæstiréttur birt 30. apríl 2010

182/2010

Frjálsi fjárfestingarbankinn hf (Friðjón Örn Friðjónsson hrl) gegn Hveragerðisbæ (Anton Björn Markússon hrl)

Kærður var úrskurður héraðsdóms, þar sem frumvarpi sýslumanns um úthlutun söluverðs fasteignar var breytt á þann hátt að H fékk úthlutað tiltekinni fjárhæð vegna skuldar á gatnagerðargjöldum. Talið var að þar sem H hefði látið eiganda fasteignarinnar gefa út til sín svokallaða skuldaryfirlýsingu vegna gatnagerðargjaldanna, þar sem meðal annars var samið um að reka mætti mál um kröfu samkvæmt henni eftir sérreglum XVII. kafla laga nr. 91/1991, væri óhjákvæmilegt að líta svo á að réttindi samkvæmt þessu skjali hafi verið slitin úr tengslum við lögskiptin að baki því og það gert að viðskiptabréfi. Með því að taka við þessu viðskiptabréfi hafi H fengið greiðslu skuldar lóðarhafans vegna gatnagerðargjalds og upp frá því ekki átt kröfu á hendur honum á öðrum grunni en bréfið sjálft hafi borið með sér. Lögveðréttur samkvæmt 4. gr. laga nr. 17/1996 hafi verið veittur sveitarfélögum fyrir kröfu um ógreitt gatnagerðargjald, en hafi ekki með samningi getað færst til handhafa kröfu samkvæmt viðskiptabréfi. Var því hafnað kröfu H um að frumvarpi sýslumanns um úthlutun söluverðs fasteignarinnar yrði breytt.

Héraðsdómur Suðurlands birt 26. febrúar 2010

Z-4/2009

málinu nr. Z-4/2009 Sveitarfélagið Árborg (Sigurður Sigurjónsson hrl) gegn Íslandsbanka (Þórir Örn Árnason hdl)

Ágreiningur stóð um úthlutun af uppboðsandvirði fasteignar vegna gatnagerðargjalda og lögveðsrétt í eigninni. Gengið hafði verið frá greiðslufyrirkomulagi með skuldayfirlýsingu sem varnaraðili taldi vera fullnaðargreiðslu á gjöldunum og lögveðsrétturinn því fallinn niður þar sem skuldayfirlýsingin væri viðskiptabréf. Ekki var fallist á þau sjónarmið varnaraðila og kröfur sóknaraðila um að fá greitt af uppboðsandvirðinu á grundvelli lögveðsins teknar til greina.

Héraðsdómur Suðurlands birt 24. febrúar 2010

Z-1/2009

Hveragerðisbær (Eiríkur Gunnsteinsson hdl) gegn Frjálsa fjárfestingarbankanum hf (Gylfi Jens Gylfason hdl)
Lykilorð: Lögveð. Viðskiptabréf.

Krafa sveitarfélags um að fá sér úthlutað af uppboðsandvirði fasteignar tekin til greina. Ekki var fallist á með varnaraðila að undirritun sérstakrar skuldaviðurkenningar fyrir gatnagerðargjöldum hafi verið ígildi veðskuldabréfs sem fæli í sér fullnaðargreiðslu á gjöldunum og því væri lögveðsrétturinn fallinn niður.

Hæstiréttur birt 23. október 2009

544/2009

Frjálsi fjárfestingarbankinn hf (Garðar Víðir Gunnarsson hdl) gegn Hveragerðisbæ (Guðmundur Ágústsson hrl)

Kærður var úrskurður héraðsdóms, þar sem frumvarpi sýslumannsins á Selfossi um úthlutun söluverðs fasteignar var breytt á þann hátt að H fékk til úthlutunar tiltekna fjárhæð vegna skuldar á gatnagerðargjöldum. Í dómi Hæstaréttar var tekið fram að samkvæmt 4. mgr. 75. gr. laga nr. 90/1991 hafi héraðsdómara borið að veita aðilum frest til að skila greinargerðum og afla sýnilegra sönnunargagna ef þörf krefði. Þetta hafi ekki verið gert og engar greinargerðir hafi verið lagðar fram af hálfu aðila. Var úrskurður héraðsdóms því ómerktur svo og meðferð málsins frá því málið var fyrst tekið fyrir og því vísað heim til löglegrar meðferðar.

Héraðsdómur Suðurlands birt 4. september 2009

Z-1/2009

málinu nr. Z-1/2009 Hveragerðisbær (Eiríkur Gunnsteinsson hdl) gegn Frjálsa fjárfestingarbankanum hf (Garðar Víðir Gunnarsson hdl)

Deilt um lögveðsrétt fyrir gatnagerðargjöldum. Frumvarpi sýslumanns um úthlutun söluverðs fasteignar breytt þar sem talið var að lögveðsréttur væri fyrir hendi.

Hæstiréttur birt 13. nóvember 2008

587/2008

Bólstaður ehf (Guðjón Ármann Jónsson hrl) gegn Rangárþingi Eystra (Ásgeir Jónsson hrl)

B leitaði úrlausnar héraðsdóms um að haldið skyldi áfram nauðungarsölu á nánar tilgreindri fasteign í Rangárþingi Eystra. Héraðsdómur vísaði málinu frá á þeim grundvelli að gerðarbeiðandi, R, hefði andmælt því að málið yrði borið undir dóm, eins og áskilið er í 4. mgr. 22. gr. laga nr. 90/1991 um nauðungarsölu. Var niðurstaða héraðsdóms staðfest í Hæstarétti.

Hæstiréttur birt 13. nóvember 2008

586/2008

585/2008

584/2008

583/2008

582/2008

Héraðsdómur Suðurlands birt 7. október 2008

Z-1/2008

málinu nr. Z-1/2008, Bólstaður og ehf (Jón Ármann Guðjónsson hdl) gegn Rangárþingi eystra (Ásgeir Jónsson hrl)

Uppboðsþoli bar undir héraðsdóm mótmæli sín gegn því að uppboð héldi áfram á þeim grundvelli að lögveðsréttur væri ekki til staðar lengur. Uppboðsbeiðandi mótmælti kröfunni strax hjá sýslumanni. Málinu var vísað frá dómi þar sem samþykki uppboðsbeiðanda lá ekki fyrir og því skilyrði laganna um að uppboðsþoli geti borið ágreining samkvæmt 13. kafla laganna undir dómstóla, ekki uppfyllt.

Hæstiréttur birt 2. september 2002

340/2002

Búnaðarbanki Íslands hf (Brynjólfur Kjartansson hrl) gegn Vatnsorku ehf og Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Hróbjartur Jónatansson hrl)

Nauðungarsala fór fram á fasteign sem hafði verið skipt með eignaskiptayfirlýsingu í tvo aðskilda eignarhluta. Í málinu var deilt um hvort greiða skyldi lögveðskröfu vegna gatnagerðargjalda að fullu af söluverði annars eignarhlutans eða að hálfu af söluverði hvors þeirra. Í dómi héraðsdóms var talið að veð hvíldi að fullu á þeirri eign sem væri upphaflega veðsett, en skiptist ekki sjálfkrafa niður þó henni væri síðar skipt upp. Niðurskiptingu veðs yrði þar af leiðandi ekki við komið nema lög heimiluðu slíkt eða samþykki viðkomandi veðhafa kæmi til. Þættu ekki standa rök til þess að aðrar reglur giltu að þessu leyti um lögveð. Var því fallist á að lögveðskrafan skyldi greidd að fullu af söluverði annars eignarhlutans í stað þess að greiðast að hálfu af söluverði hvors þeirra. Hæstiréttur staðfesti úrskurð héraðsdóms með vísan til forsendna hans.