Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
3 dómar fundust
Lög: Leiklistarlög nr. 138/1998
Í desember árið 2008 tók helmingur hluthafa í F ehf. ákvörðun um slit félagsins og arðgreiðslur á aukahluthafafundi. Í dómi héraðsdóms kom fram að þótt rætt hafi verið um greiðslurnar sem arðgreiðslur til hluthafa væri ljóst að efnislega hafi verið um að ræða greiðslur vegna slita einkahlutafélags og uppgjör á þeim grundvelli. Taldi dómurinn að skilyrði laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög og samþykkta F ehf. hafi brostið til að taka ákvörðun um slit félagsins á umræddum fundi. Þá taldi dómurinn að án tillits til þess hvort litið yrði á greiðslu F ehf. til K sem úthlutun eigna einkahlutafélags við slit eða arðgreiðslu hafi verulega skort á að gætt hafi verið þeirra reglna sem um slíkar ákvarðanir gilda. Var ráðstöfun þáverandi framkvæmdastjóra F ehf., sem var eiginmaður K, því talin bersýnilega andstæð þeim reglum sem gilda um slit einkahlutafélaga og úthlutun eigna félags við slit og var talið að K, sem stjórnarmanni, hafi ekki getað dulist ólögmæti þeirrar ákvörðunar sem tekin var á fundinum. Hafnað var málsástæðum er lutu að aðildarskorti F ehf., sem var undir slitum, og að endurgreiðslukrafa félagsins væri fyrnd. Með vísan til forsendna héraðsdóms var staðfest niðurstaða hans um að K yrði gert að endurgreiða félaginu upphæð sem nam arðgreiðslu til hennar.
Í desember árið 2008 tók helmingur hluthafa í F ehf. ákvörðun um slit félagsins og arðgreiðslur á aukahluthafafundi. Í dómi héraðsdóms kom fram að þótt rætt hafi verið um greiðslurnar sem arðgreiðslur til hluthafa væri ljóst að efnislega hafi verið um að ræða greiðslur vegna slita einkahlutafélags og uppgjör á þeim grundvelli. Taldi dómurinn að skilyrði laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög og samþykkta F ehf. hafi brostið til að taka ákvörðun um slit félagsins á umræddum fundi. Þá taldi dómurinn að án tillits til þess hvort litið yrði á greiðslu F ehf. til K sem úthlutun eigna einkahlutafélags við slit eða arðgreiðslu hafi verulega skort á að gætt hafi verið þeirra reglna sem um slíkar ákvarðanir gilda. Var ráðstöfun K, sem var þáverandi framkvæmdastjóri F ehf., því talin bersýnilega andstæð þeim reglum sem gilda um slit einkahlutafélaga og úthlutun eigna félags við slit. Hafnað var málsástæðum er lutu að aðildarskorti F ehf., sem var undir slitum, og að endurgreiðslukrafa félagsins væri fyrnd. Með vísan til forsendna héraðsdóms var staðfest niðurstaða hans um að K yrði gert að endurgreiða félaginu upphæð sem nam arðgreiðslu til hans.
Máli vísað frá dómi.