Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lög: Lög um breyting á umferðarlögum, nr. 50 30. mars 1987, með síðari breytingum. nr. 138/1996

Landsréttur birt 11. desember 2025

51/2025

Tómas Hilmar Ragnarsson (Magnús Jónsson lögmaður) gegn Sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi (Bjarki Már Baxter lögmaður)

S höfðaði mál fyrir héraðsdómi og krafðist skaðabóta úr hendi T vegna nánar tilgreinds tjóns sem S taldi að T bæri ábyrgð á sem eini stjórnarmaður, framkvæmdastjóri, prókúruhafi og meirihlutaeigandi O ehf. en félagið hafði verið tekið til gjaldþrotaskipta. Í dómi héraðsdóms var fallist á kröfu S. Í dómi Landsréttar kom fram að samkvæmt 1. mgr. 16. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála geti aðili dómsmáls verið hver sá einstaklingur, félag eða stofnun sem getur átt réttindi eða borið skyldur að landslögum. Um aðild til sóknar í einkamáli gildi enn fremur að sá einn geti með réttu höfðað mál sem sé rétthafi að þeim hagsmunum sem leitað sé úrlausnar um. Skortur á aðildarhæfi svo og vanreifun á aðildarhæfi og aðild leiði til frávísunar máls án kröfu. Í héraðsdómsstefnu höfðu engin rök verið færð fram fyrir aðildarhæfi S auk þess sem þar hefði ekki verið vikið að fyrirsvari hans svo sem áskilið sé í b-lið 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991. Væri málatilbúnaður S að þessu leyti haldinn verulegum annmörkum. Þá þótti ekki nægilega ráðið af gögnum sem S lagði fram fyrir Landsrétti að hann gæti átt sjálfstæð réttindi eða borið skyldur samkvæmt 1. mgr. 16. gr. laga nr. 91/1991. Var málinu því vísað frá héraðsdómi án kröfu.