Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
8 dómar fundust
Lög: Lög um breyting á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum, og fleiri lögum. nr. 129/2004
Ákæruvaldið (
Ólafur Kr. Hjörleifsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Guðna Hjalta Haraldssyni (
Bragi Dór Hafþórsson hdl)
Maður sakfelldur fyrir brot á skattalögum og lögum um bókhald.
Stefnda sýknað af kröfu stefnanda um ógildingu úrskurðar ríkisskattstjóra á niðurfellingu heimilisfestar.
I var ákærður fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum sem framkvæmdastjóri X ehf. og meiri háttar brot gegn skatta- og bókhaldslögum í sjálfstæðri atvinnustarfsemi I sjálfs. I krafðist frávísunar málsins þar sem fyrrverandi eiginkona hans hefði einnig átt að sæta ákæru, en hún hafði verið stjórnarmaður í X ehf., haft prókúru fyrir það og annast bókhald þess. Tekið var fram að ætluð vanræksla stjórnarmanns á eftirlitsskyldu firrti framkvæmdastjóra ekki ábyrgð á rekstri félags. Ekki yrði talið að málið hefði verið í því horfi að lokinni lögreglurannsókn að ákæruvaldinu hefði ekki að réttu lagi verið fært að meta hvort af saksókn ætti að verða á hendur I. Brotin voru talin sönnuð og réttilega heimfærð til refsiákvæða. Hæstiréttur taldi að þegar litið væri lagaákvæða sem kvæðu skýrt á um fésektarlágmark væru ekki efni til þess við ákvörðun refsingar I að líta til fullyrðinga hans um ætlaða samábyrgð annars einstaklings vegna starfa hans í þágu X ehf. Slíkt kæmi eingöngu til greina ef fleiri menn hefðu verið ákærðir og sakfelldir fyrir sömu brot. Með vísan til ákvæða stjórnarskrár og mannréttindasáttmála Evrópu kæmi ekki til álita að dómstóll fjallaði um mögulega sakfellingu manns á slíkum grundvelli sem ekki hefði verið ákærður. Brot I voru talin stórfelld og var refsing hans ákveðin fangelsi í 10 mánuði, skilorðbundið til tveggja ára. I var einnig gert að greiða ríkissjóði 42 milljónir króna í sekt, en sæta ella fangelsi í eitt ár.
Ákærði vanframtaldi tekjur í rekstri sínum árin 2003-2005 og skilaði því ekki virðisaukaskatti eins og honum bar auk þess að hann var sakfelldur fyrir að skila virðisaukaskattskýrslum of seint. Ákærði var dæmdur í átta mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára auk þess að vera gert að greiða 35.000.000 í sekt til ríkissjóðs, ella sæta fangelsi í sex mánuði.
Ákærði var dæmdur fyrir meiri háttar brot gegn skatta- og bókhaldslögum.
Ákæruefni vegna brota á skattalögum að stærstum hluta vísað frá dómi á þeim forsendum að ákærðu hafi þegar verið gerð refsing fyrir brot á skattalögum.
Ákæruvaldið (
Eyjólfur Ármannsson ftr)
gegn
Viðari Guðmundi B. Arnarsyni (
Helgi Jóhannesson hrl)
G var sakfelldur fyrir brot gegn skattalögum, lögum um bókhald og 262. gr. almennra hegningarlaga. Hann var dæmdur til skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar og til að greiða sekt.
Ákært fyrir brot á lögum um virðisaukaskatt, lögum um tekjuskatt og tekjustofna sveitarfélaga, lögum um bókhald og almennum hegningarlögum. Ákærði játaði brot sín. Dæmdur til greiðslu sektar og til að sæta fangelsi í fimm mánuði, skilorðsbundið til þriggja ára.