Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lög: Lög um breytingu á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, nr. 1/1997, með síðari breytingum (breyting á A-deild sjóðsins). nr. 127/2016
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu A um að lífeyrisréttindi B kæmu til skipta sem hjúskapareign við fjárslit þeirra. Í úrskurði Landsréttar var fallist á að hluti af séreignarsparnaði B sem heimild væri til úttektar á, í samræmi við VIII. ákvæði til bráðabirgða með lögum nr. 129/1997, sbr. lög nr. 25/2020, hefði endurkaupsvirði samkvæmt kröfu maka í samræmi við 2. tölulið. 1. mgr. 102. gr. hjúskaparlaga nr. 31/1993 og skyldi koma til skipta við fjárslitin. Að öðru leyti var niðurstaða héraðsdóms staðfest.
Stefnandi krafðist viðurkenningar á bótaskyldu ríkisins vegna lagabreytinga sem gerðar voru árið 2016 á lögum um Lífeyrissjóð opinberra starfmanna, einkum að því er varðar skipulag og fjármögnun A-deildar sjóðsins. Byggði stefnandi á því að tjón hennar fælist annars vegar í lækkun sem lífeyrisgreiðslur til hennar muni sæta vegna afnáms ábyrgðar ríkisins á skuldbindingum sjóðsins og hins vegar á skertu framlagi til hennar úr lífeyrisaukasjóði þar sem framlag til þess sjóðs og varasjóðs dygðu ekki til að greiða henni óskertan lífeyri sem þeim væri ætlað að standa undir. Máli þessu var vísað frá dómi að kröfu stefnda þar sem talið var ósannað að umdeildar lagabreytingar muni leiða til tjóns fyrir stefnanda. Átti stefnandi því ekki lögvarða hagmuni af efnislegri úrlausn málsins og voru þar með ekki uppfyllt skilyrði fyrir málshöfðun á grundvelli 2. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991.