Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
4 dómar fundust
Lög: Lög um breytingu á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, brottfall laga nr. 97/1987, um vörugjald, breytingu á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt, og breytingu á fleiri lögum (kerfisbreyting á virðisaukaskatti, brottfall laga og hækkun barnabóta). nr. 124/2014
V höfðaði mál á hendur Í og krafðist þess að ógilt yrði ákvörðun ríkisskattstjóra um synjun á endurgreiðslu virðisaukaskatts samkvæmt 3. mgr. 43. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sbr. 2. gr. reglugerðar nr. 288/1995 um endurgreiðslu virðisaukaskatts til erlendra fyrirtækja. V byggði meðal annars á því að öll skilyrði endurgreiðslu virðisaukaskatts hefðu verið uppfyllt og að niðurstaða ríkisskattstjóra um skráningarskyldu V á virðisaukaskattsskrá væri röng. Þá byggði V einnig á því að vikið hefði verið frá áralangri túlkun og framkvæmd ríkisskattstjóra um skráningarskyldu erlendra ferðaskrifstofa. Í dómi Hæstaréttar var rakið að fyrir lægi að V hefði selt ferðaþjónustu til afhendingar hér á landi sem ekki væri undanþegin skattskyldusviði laganna. Yrði því að telja að honum hefði borið skylda til að innheimta virðisaukaskatt og standa skil á honum í ríkissjóð eins og kveðið væri á um í 1. tölulið 1. mgr. 3. gr. laga nr. 50/1988. Bar V því að skrá sig á virðisaukaskattsskrá, sbr. 1. mgr. 5. gr. laganna, enda ekki undanþeginn skattskyldu samkvæmt 4. gr. þeirra. Að þessu gættu og með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var fallist á niðurstöðu ríkisskattstjóra um skatt- og skráningarskyldu V. Af þessu leiddi að skilyrðum fyrrgreindra laga og reglugerðar til endurgreiðslu virðisaukaskatts væri ekki fullnægt. Þá taldi Hæstiréttur ekki unnt að líta svo á að þegar V lagði fram beiðnir sínar um endurgreiðslu virðisaukaskatts hefði það verið orðin föst og alkunn framkvæmd skattyfirvalda að erlendum ferðaskrifstofum bæri ekki að skrá sig á virðisaukaskattsskrá vegna sölu þeirra á þjónustu sem innt væri af hendi til neytenda hér á landi. Öðrum málsástæðum V var jafnframt hafnað og hinn áfrýjaði dómur um sýknu Í staðfestur.
Með dómi Landsréttar var Í sýknað af kröfu V um ógildingu á ákvörðun ríkisskattstjóra 12. janúar 2022 þar sem kröfu V um endurgreiðslu á virðisaukaskatti fyrir nánar tilgreint tímabil árin 2016 til 2018 var hafnað. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að sú þjónusta V sem beiðni hans um endurgreiðslu náði til hefði varðað kaup og endursölu á ýmissi ferðatengdri þjónustu sem hann keypti af þjónustuaðilum á Íslandi, skeytti saman í ferðapakka og seldi ferðamönnum erlendis til nota hér á landi. Hefði V ekki verið undanþeginn skattskyldu samkvæmt 4. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. sömu laga, auk þess sem fyrir lægi að umrædd þjónusta hefði ekki verið undanskilin virðisaukaskatti samkvæmt 3. mgr. 2. gr. laga nr. 50/1988. Var fallist á þá málsástæðu Í að V hafi borið skylda til að gæta að ákvæði 5. gr. laganna og óska eftir skráningu umræddrar starfsemi á virðisaukaskattsskrá, eftir atvikum fyrir atbeina umboðsmanns á grundvelli 6. töluliðar 1. mgr. 3. gr. laga nr. 50/1988. Af því leiddi að V hefði ekki átt rétt á endurgreiðslu virðisaukaskatts á grundvelli þágildandi 3. mgr. 43. gr. laga nr. 50/1998, sbr. 2. gr. reglugerðar nr. 288/1995. Loks var ekki fallist á með V að við töku ákvörðunar ríkisskattstjóra hafi verið brotið gegn nánar tilgreindum reglum stjórnsýsluréttar.
Stefnandi sem er erlend ferðaskrifstofa krafðist ógildingar á úrskurði ríkisskattstjóra vegna synjunar á endurgreiðslu virðisaukaskatts fyrir tímabilið frá 2016 til 2018. Stefnandi hafi keypt ýmsa þjónustuþætti hér á landi og sett saman í ,,ferðapakka" sem seldir voru til erlendra viðskiptavina búsettir utan Íslands. Ekkert starfsfólk stefnanda fylgdi viðskiptavinum til Íslands. Í lögskýringargögnum og leiðbeiningum skattyfirvalda höfðu ítrekað verið dregnar upp sviðsmyndir þar sem erlendar ferðaskrifstofur sem endurselja ferðapakka væru ekki skráningar- eða skattskyldar hérlendis nema um sé að ræða einhver tengsl (t.d útibú, starfsmann, umboðsmann osfrv.) við Ísland. Enginn greinarmunur var gerður á milligöngu og endursölu að þessu leyti í þessum gögnum. Var fallist á ógildingu ákvörðunar ríkisskattstjóra með vísan til þess að ekki yrði séð að ákvörðun ríkisskattstjóra tæki mið af því að ákvæði 4. mgr. 11. gr. laga nr 124/2014 hafi bæði náð til milligöngu og endursölu, auk þess sem talið var eðlilegt að skattyfirvöld rökstyddu hvers vegna þau teldu sig ekki bundin af fyrr túlkun sem kom fram í lögskýringagögnum, skýrslu starfshóps og á heimasíðu skattyfirvalda og þá um leið hvernig slík ákvörðun samræmist meginreglum stjórnsýsluréttar um lögmæti, meðalhóf, fyrirsjáanleika, jafnræði og vandaða stjórnsýsluhætti. Þá var talið að ákvörðunin hefði ekki byggst á skýrum lagaákvæðum a.m.k. eins og þau höfðu verið túlkuð af skattyfirvöldum og útskýrð í lögskýringargögnum og leiðbeiningum til framteljanda. Var lagt til grundvallar að eðlilegast hefði verið að gera þessar breytingar með lögum eins og raunar var gert með gildistöku laga nr. 143/2018 þann 1. janúar 2019. Var jafnframt talið að í ljósi fyrri framkvæmdar hafi stefnandi mátt út frá lögmætis- og jafnræðisreglu ganga út frá að umsókn hans um endurgreiðslu á virðisaukaskatti yrði afgreidd með sambærilegum hætti og gert hafði verið í fjölda umsókna sem áður höfðu verið afgreiddar. Var ákvörðun ríkisskatstjóra ógild og stefnda gert að greiðal stefnanda málskostnað.
Ákærði sakfelldur fyrir stórfellt skattalagabrot og brot gegn lögum um virðisaukaskatt og lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda.