Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lagagrein: 23. gr. laga nr. 117/1993 — Lög um almannatryggingar

Hæstiréttur birt 26. janúar 2012

298/2011

Sigurborg Fuglö Hlöðversdóttir (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl) gegn Nesfiski ehf (Valgeir Pálsson hrl)

S krafði N ehf. um bætur vegna afleiðinga slyss sem hún kvaðst hafa orðið fyrir við fiskverkun hjá félaginu. Í dómi Hæstaréttar kom m.a. fram að S hafi leitt líkur að því hún hafi meiðst við vinnu sína hjá N ehf. en á hinn bóginn ekki fært fram nein gögn um að hún hafi orðið fyrir varanlegu líkamstjóni er rekja mætti til saknæmrar háttsemi félagsins eða starfsmanna þess. Þegar litið væri til þess tíma er leið frá atvikinu og þar til S skýrði N ehf. og T hf. frá slysinu var ekki talið að vanræksla N ehf. að sinna ekki lögboðinni skyldu sinni til að tilkynna slysið ylli því að skaðabótaskylda yrði felld á það.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. maí 2008

E-6567/2006

Ari Bragason (Steingrímur Þormóðsson hrl) gegn Samskipum hf og Vátryggingafélagi Íslands hf (Hákon Árnason hrl)

Stefnandi krafði stefnda um bætur vegna þriggja vinnuslysa. Hluta af kröfu stefnanda var vísað frá dómi. Stefndi var sýknaður að hluta, en dæmdur til greiðslu hluta af kröfu stefnanda.