Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 2. mgr. 1. gr. laga nr. 111/2000 — Lög um sjúklingatryggingu

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 26. maí 2026 kl. 16:53

E-5109/2025

A (Arnar Gauti Grettisson lögmaður) gegn Sjúkratryggingum Íslands (Gunnlaugur Úlfsson lögmaður)
Málaflokkur: Vátryggingaréttur

Stefnandi höfðaði mál á hendur stefnda, Sjúkratryggingum Íslands, til viðurkenningar á bótaskyldu fyrir tjón sem hún hlaut við læknismeðferð í útlöndum. Talið var að ætluð krafa hennar á hendur stefnda hefði verið fallin niður fyrir fyrningu þegar hún höfðaði málið.

Hæstiréttur birt 1. desember 2016

17/2016

A (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl, Hildur Ýr Viðarsdóttir hdl, 1. prófmál) gegn Sjúkratryggingum Íslands og íslenska ríkinu (Erla Svanhvít Árnadóttir hrl, Óskar Thorarensen hrl, Agnar Þór Guðmundsson hdl, 3. prófmál)

Ágreiningur aðila laut að því hvort S og Í bæru bótaábyrgð á líkamstjóni sem A taldi að rekja mætti til afleiðinga læknismeðferðar sem hann hlaut árið 2003, annars vegar á Ítalíu þar sem hann var fyrst lagður inn í kjölfar þess að hann varð fyrir heilablóðfalli og hins vegar á Landspítala sem tók við meðferð A eftir komu hans til Íslands um viku síðar. Í dómi Hæstaréttar kom fram að A hefði sjálfur leitað á umrætt sjúkrahús á Ítalíu án þess að vist hans þar hefði komið til eftir reglum þágildandi 35. gr. laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, sbr. nú 1. mgr. 23. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar, hvorki að því er varðaði ástæðu fyrir henni né aðdraganda hennar. Af þessum sökum gæti hann ekki krafið S um bætur vegna tjóns, sem rekja mætti til meðferðarinnar þar ytra. Kröfu um bætur fyrir slíkt tjón yrði enn síður beint að Í á grundvelli almennra reglna um sakarábyrgð starfsmanna Landspítala og vinnuveitandaábyrgð Í á þeim. Kom því einungis til skoðunar hvort A ætti rétt til bóta vegna tjóns af þeirri meðferð sem hann fékk á Landspítala á nánar tilgreindu tímabili. Með hliðsjón af niðurstöðum tveggja matsgerða var talið að ýmis mistök hefðu verið gerð við meðferð A frá því að hann var lagður inn á Landspítala, þar á meðal að ekki hefði verið gætt að því að afla upplýsinga frá ítalska sjúkrahúsinu um greiningu á sjúkdómi hans og meðferð þar, ekki hefði verið bætt úr þessu með viðhlítandi rannsóknum og A hefði vegna mistaka þurft að sæta einangrun vegna smithættu lengur en þörf hefði verið. Þá hefði honum verið gefið lyf sem yki hættu á því að hann fengi á ný blóðtappa í heila, sem síðar varð raunin. Var því lagt til grundvallar að uppfyllt væru skilyrði 1. töluliðar 2. gr. laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu til að A öðlaðist rétt til bóta úr sjúklingatryggingu. Í samræmi við niðurstöðu yfirmatsgerðar var jafnframt lagt til grundvallar að tjón A af völdum meðferðarinnar á Landspítala á umræddu tímabili svaraði til fjórðungs af heildartjóni hans. Loks var ekki fallist á með S að krafa A hefði verið fallin niður fyrir fyrningu samkvæmt 1. mgr. 19. gr. laga nr. 111/2000. Samkvæmt framansögðu var S gert að greiða A tilgreinda fjárhæð.