Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
4 dómar fundust
Lagagrein: 3. mgr. 6. gr. laga nr. 106/2000 — Lög um mat á umhverfisáhrifum
H og L höfðuðu mál og kröfðust þess að ógilt yrði ákvörðun S frá 12. mars 2019 um að fyrirhuguð framkvæmd svínabús að Torfum í Eyjafjarðarsveit væri ekki líkleg til þess að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og skyldi því ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Málsókn sína byggðu H og L í meginatriðum á því að ákvörðun S hefði verið haldin efnislegum annmörkum. Með vísan til fyrirliggjandi matsgerðar hefði S átt að miða við að framkvæmdin væri matsskyld samkvæmt 5. gr. þágildandi laga nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum. Til vara að S hafi ranglega lagt til grundvallar að framkvæmdin myndi ekki hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif vegna umfangs, eðlis eða staðsetningar, sbr. 1. mgr. 6. gr. sömu laga. Í dómi héraðsdóms var því hafnað að hin fyrirhugaða framkvæmd félli undir 5. gr. laganna. Þá kom meðal annars fram að ekki væri annað að sjá af rökstuðningi ákvörðunar S en að stofnunin hafi við ákvörðun sína, um hvort fyrirhuguð framkvæmd væri líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, í skilningi 1. mgr. 6. gr. laganna, litið með heildstæðum hætti til þeirra viðmiða sem tilgreind voru í 2. viðauka laga nr. 106/2000 og svöruðu til þeirra valforsendna sem voru settar fram í III. viðauka tilskipunar 2011/92/EBE. Bæri ákvörðunin þannig með sér að það mat sem S lagði til grundvallar í málinu hefði verið í samræmi við kröfur laga nr. 106/2000 að þessu leyti og þær alþjóðlegu skuldbindingar sem lögin byggðust á. Vísaði héraðsdómur einnig til þess að í ljósi þess heildstæða mats sem S bar að gera á fyrirhugaðri framkvæmd væri ekki unnt að líta svo á að niðurstöður matsgerðar sýndu fram á efnislega annmarka á ákvörðun S. Yrði þá að líta til þess að þau þrjú atriði sem matsmaður gerði grein fyrir í niðurstöðu sinni lutu einvörðungu að þremur þáttum sem vörðuðu eðli framkvæmdar. Eðli framkvæmdar væri hins vegar einungis eitt þeirra þriggja grundvallarviðmiða sem S bæri að líta til við ákvörðun um matsskyldu samkvæmt 2. viðauka laga nr. 106/2000, sbr. 3. mgr. 6. gr. sömu laga. Var matsgerðin því ekki talin hafa þýðingu fyrir úrlausn málsins. Málsástæðum H og L um að ákvörðun S væri haldin efnisannmörkum var því hafnað. Þá hafnaði héraðsdómur því að S hefði brotið gegn reglum um upplýsinga- og andmælarétt, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga nr. 106/2000, og rannsóknarskyldu samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. S, Í og T voru því sýknuð en E var sýknaður á grundvelli aðildarskorts, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Fyrir Landsrétti gerðu H og L aðallega þá kröfu að dómur héraðsdóms yrði ómerktur þar sem þörf hefði verið á sérfróðum meðdómsmanni í héraði, enda hefði verið um að ræða matskennda stjórnvaldsákvörðun sem falið hafi í sér sérfræðiþekkingu, auk þess sem fyrir hafi legið matsgerð dómkvadds manns. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að með hinum áfrýjaða dómi hefði verið komist að þeirri niðurstöðu, á grundvelli lögfræðilegra röksemda, að matsgerð hins dómkvadda manns hefði ekki þýðingu fyrir úrlausn málsins. Hvorki matsgerðin né eðli ákvörðunarinnar hefði leitt til þess að sérkunnáttu hefði verið þörf í dómi til að leysa úr málsástæðum aðila þannig að efni væru til að ómerkja hinn áfrýjaða dóm. Var kröfu H og L um ómerkingu héraðsdóms því hafnað og hinn áfrýjaði dómur staðfestur með vísan til forsendna.
Hafnað var kröfu stefnenda um að ákvörðun Skipulagsstofnunar um að ekki skyldi fara fram mat á umhverfisáhrifum framkvæmdar yrði ógiltur.
Vegna annmarka á rannsókn og umfjöllun Skipulagsstofnunar í tilefni af tilkynningu um fyrirhugaða byggingu á sólarkísilverksmiðju var ákvörðun hennar, þess efnis að ekki þyrfti að meta umhverfisáhrif framkvæmdarinnar, felld úr gildi.
Ragnheiður Jóna Þorgrímsdóttir, Davíð Bragi Gígja, Guðrún Lilja Ingólfsdóttir, Jón Gíslason, Sólrún Þórarinsdóttir, Ólafur Jónsson, Ragnar Gunnarsson, Unnur Sigfúsdóttir, Helga Hermannsdóttir, Sigurþór Ingi Sigurðsson, Hulda Þorsteinsdóttir, Anna Guðfinna Ingólfsdóttir, Gunnar Leó Helgason, Helgi Jónsson, Sigríður Inga Hlöðversdóttir, Þórarinn Jónsson, Lisa Sascha Boije af Gennaes, Aðalheiður B. Einarsdóttir, Hermann Ingi Ingólfsson, Bergþóra Andrésdóttir, Sigurbjörn Hjaltason, Björn Hjaltason, Katrín Cýrusdóttir, Laufey Kristjánsdóttir, Maríanna Hugrún Helgadóttir, Regína Hansen Guðbjörnsdóttir, Rósa Guðný Þórsdóttir, Örn Viðar Erlendsson, Guðrún Björk Gunnarsdóttir, Jóna Björk Jónsdóttir, Sigurbjörg Ólafsdóttir, Sigurþór Gíslason, Jóna Thors, Kristín Eyjólfsdóttir, Magnús Bergmann Magnússon, Eggert Þór Sveinbjörnsson, Soffía Dagmar Þórarinsdóttir, Björn Guðbrands Ólafsson, Guðríður Gunnarsdóttir, Gunnar Auðunn Gíslason, Guðbjörg R. Jóhannesdóttir, Magnús Guðbjartsson, Guðbjörg Jóna Magnúsdóttir, Gunnar Ásbjörnsson, Ingibjörg Jónsdóttir, Einar Tönsberg, Rakel McMahon, Ágústa Oddsdóttir, Pia Rakel Sverrisdóttir og Skúli Mogensen (
Páll Rúnar M. Kristjánsson hrl)
gegn
Silicor Materials Inc,
Silicor Materials Iceland ehf,
Silicor Materials Iceland Holding hf,
Skipulagsstofnun (
Arnar Þór Stefánsson hrl) og
íslenska ríkinu (
Fanney Rós Þorsteinsdóttir hrl)
S o.fl. kröfðust þess að ógilt yrði ákvörðun Skipulagsstofnunar um að fyrirhuguð framkvæmd SM Inc. á Grundartanga í Hvalfjarðarsveit, sem fólst í hreinsun kísilmáls til framleiðslu á sólarkísli, væri ekki líkleg til þess að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og skyldi því ekki háð mati á umhverfisáhrifum, sbr. lög nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum. Undir rekstri málsins í héraði kröfðust S o.fl. þess að aflað yrði ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins á átta spurningum sem vörðuðu túlkun á tilskipun 85/337/EBE með síðari breytingum. Hæstiréttur staðfesti hinn kærða úrskurð um að hafna beiðni S o.fl. þar sem ekki yrði séð að svör EFTA-dómstólsins hefðu þýðingu fyrir úrslausn málsins.