Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 2. mgr. 14. gr. laga nr. 106/2000 — Lög um mat á umhverfisáhrifum

Hæstiréttur birt 14. mars 2008

114/2008

Ragnar Stefánsson, Ásgeir Núpan Ágústsson, Ásmundur Gíslason, Helga Erlendsdóttir, Ragnar Jónsson, Hjalti Egilsson, Eiríkur Egilsson, Bjarni Hákonarson, Finndís Harðardóttir, Kristján Jónsson, Kjartan Jónsson, Lovísa Eymundsdóttir, Meðalfell ehf, Þorleifur Hjaltason, Guðbjörg Ósk Jónsdóttir, Anna Lilja Jónsdóttir og Þorbergur Hjalti Jónsson (Karl Axelsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl) og Vegagerðinni (Kristinn Bjarnason hrl)

V lagði fram tillögu að matsáætlun til S, í samræmi við ákvæði laga nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum, vegna fyrirhugaðrar lagningar hringvegar um Hornafjarðarfljót. Komu sóknaraðilar málsins á framfæri athugasemdum við stofnunina og með hliðsjón af þeim athugasemdum meðal annars var tillagan samþykkt með breytingum, sem fólu í sér að lagt var fyrir V að kanna fleiri vegarstæði en tillaga að matsáætlun gerði ráð fyrir. V kærði umrædda ákvörðun S til umhverfisráðherra sem felldi ákvörðunina úr gildi að því leyti sem hún fól í sér mat á öðrum kostum en V hafði byggt tillögu sína að matsáætlun á. Var málið höfðað af sóknaraðilum til að fá þeim úrskurði umhverfisráðherra hnekkt. Talið var að þótt 14. gr. laga nr. 106/2000 takmarki kæruheimild við framkvæmdaraðila raskaði það ekki rétti manna til að bera mál undir dómstóla ættu þeir lögvarinna hagsmuna að gæta af úrlausn máls. Með hliðsjón af því, að matsáætlun samkvæmt 8. gr. laga nr. 106/2000 afmarki í meginatriðum til hvaða atriða mat á umhverfisáhrifum taki og að endanleg ákvörðun um legu vegar verði að byggjast á vegleið sem sætt hafi slíku mati og með vísan til e. liðar 2. töluliðar 2. mgr. 13. gr. reglugerðar nr. 1123/2005 um mat á umhverfisáhrifum og að ráða megi af gögnum málsins að sóknaraðilar eigi lönd að þeim vegarstæðum sem S ákvað að koma skyldu til mats, var talið að sóknaraðilar ættu lögvarinna hagsmuna að gæta af úrlausn dómkröfu sinnar. Var hinn kærði úrskurður um frávísun málsins því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdómara að taka málið til efnismeðferðar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. febrúar 2008

E-4705/2007

Ragnar Stefánsson, Ásgeir Núpan, Ágústsson, Ásmundur Gíslason, Helga Erlendsdóttir, Ragnar Jónsson, Hjalti Egilsson, Eiríkur Egilsson, Bjarni Hákonarson, Finndís Harðardóttir, Kristján Jónsson, Kjartan Jónsson, Lovísa Eymundsdóttir, Meðalfell ehf, Þorleifur Hjaltason, Guðbjörg Ósk, Jónsdóttir, Anna Lilja, Jónsdóttir, Þorbergur Hjalti og Jónsson (Karl Axelsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl) og Vegagerðinni (Stefán Erlendsson hdl)

Kröfu um ógildingu úrskurðar umhverfisráðherra vísað frá dómi, þar sem ekki var talið að stefnendur hefðu af því lögvarða hagsmuni að efnisdómur gengi um kröfu þeirra.