Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lagagrein: 8. gr. laga nr. 104/2001 — Lög um húsafriðun
L ehf. krafðist skaðabóta úr hendi Í vegna ákvörðunar Minjastofnunar Íslands 8. janúar 2019 um að skyndifriða þann hluta Víkurkirkjugarðs, sem var innan byggingarreits L ehf. á Landsímareit í miðbæ Reykjavíkur. Deildu aðilar um það hvort ákvörðunin hefði verið háð annmarka er leiddi til bótaábyrgðar og hvort L ehf. hefði orðið fyrir tjóni vegna hennar. Í dómi Landsréttar var komist að þeirri niðurstöðu að heimild 1. mgr. 20. gr. laga nr. 80/2012 um menningarminjar yrði ekki beitt til að friða stað, sem þegar nyti lögbundinnar friðunar, til að hindra að framkvæmdir, sem heimilaðar hefðu verið innan hins friðaða svæðis, rýrðu gildi menningarminja utan þess. Til þess að ná slíkum markmiðum hefði Minjastofnun getað beitt öðru nánar tilgreindu úrræði samkvæmt sömu lögum. Féllst Landsréttur því á að ekki hefði staðið lagaheimild til skyndifriðunar þess hluta hins forna kirkjugarðs, sem var innan byggingarreits L ehf. og að með þeirri ákvörðun hefði verið brotið gegn meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Taldi rétturinn að skilyrði bótaábyrgðar á grundvelli sakarreglunnar um ólögmæti og saknæmi væru uppfyllt. Með vísan til matsgerðar dómkvaddra matsmanna var lagt til grundvallar að L ehf. hafi vegna skyndifriðunarinnar orðið af töpuðum leigugreiðslum í [...] daga og að sú fjárhæð næmi 19.726.024 krónum. Ekki var á það fallist að L ehf. hefði sýnt af sér eigin sök er leiddi til niðurfellingar eða takmörkunar á bótaábyrgð Í. Var Í því gert að greiða L ehf. 19.726.024 krónur ásamt tilgreindum vöxtum og dráttarvöxtum.