Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Sjávarútvegur

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 27. janúar 2021

E-464/2020

Félag makrílveiðimanna (Jóhannes Bjarni Björnsson) gegn íslenska ríkinu (Eiríkur Áki Eggertsson)

Stefnandi gerði í málinu aðallega kröfu um viðurkenningardóm í þá veru að óheimilt hafi verið að takmarka heimildir félagsmanna hans til veiða úr makrílstofninum með því að grundvalla úthlutun aflahlutdeildar á grundvelli tíu bestu aflareynsluára veiðiskipa á árunum 2008–2018 samkvæmt bráðabirgðaákvæði í lögum nr. 151/1996 um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, sbr. lög nr. 46/2019 . En til vara krafðist stefnandi viðurkenningardóms um að óheimilt hafi verið að takmarka sérstaklega heimildir félagsmanna hans til ráðstöfunar á slíkum aflaheimildum í B flokki samkvæmt tilgreindum ákvæðum í sömu breytingalögum nr. 46/2019. Í báðum tilvikum taldi stefnandi að umrædd löggjöf færi í bága við jafnræði, atvinnufrelsi og tengd eignaréttindi félagsmanna hans, sbr. 1. mgr. 65. gr., og 75. gr., sbr. 72. gr. stjórnarskrár. Að mati dómsins var ekki fallist á að sýnt væri fram á það að umrædd löggjöf færi eins og á stóð í bága við framangreind stjórnarskrárákvæði og var stefndi því sýknaður.