Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
5 dómar fundust
Lykilorð: Sambúðarfólk - Annað
Stefnda gert að endurgreiða stefnanda hluta af söluandvirði fasteignar er þau höfðu sem fyrrum sambúðaraðilar átt í sameign.
Málsaðilar eru fyrrverandi sambúðaraðilar. Í niðurstöðu dómsins er stefnda gert að greiða stefndu 2.000.000 króna, sem sannað þykir að hafa verið lán á sambúðartíma.
Stefnda var sýknuð af kröfu stefnanda um endurgreiðslu fjárhæðar sem stefnandi hélt fram að hefði verið lán til hennar. Þótt um fyrrum sambúðarmaka væri að ræða var málið rekið sem skuldamál en ekki fjárslitamál. Að mati dómsins var ekki hægt að draga afdráttarlausar ályktanir af gögnum málsins um að stefnandi hefði veitt sambúðarmaka sínum lán, hverrar fjárhæðar það hafi þá verið eða með hvaða skilmálum. Þótti ósannað gegn mótmælum stefndu að tilekin fjárhæð sem stefnandi millifærði á stefndu hefði verið lán sem henni bæri að endurgreiða
Stefndu gert að endurgreiða stefnanda, fyrrverandi sambýlismanni sínum, framlag hans til kaupa stefndu á fasteign á sambúðartíma þeirra að frádregnu endurgjaldi stefnanda fyrir afnot af eigninni eftir sambúðarslitin og verðmæti gardína sem stefnandi fjarlægði úr eigninni.
Ágreiningur um fjárskipti við slit á óvígðri sambúð.