Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lykilorð: Fullar bætur
Í málinu var annars vegar deilt um að hvort stefnandi hefði fengið kaskótjón á bifreið sinni að fullu bætt með bótagreiðslu hins stefnda tryggingafélags eða hvort tjón á henni vegna tjónsatburðarins væri meira. Hins vegar krafðist stefnandi skaðabóta utan samninga úr hendi stefnda og reisti þá kröfu á því að starfsmenn vátryggingafélagsins hefðu sýnt af sér saknæma og ólögmætra háttsemi við meðferð bótakröfu hans úr kaskótryggingunni. Stefndi var sýknaður af öllum dómkröfum stefnanda og var stefnanda gert að greiða stefnda málskostnað.
Stórbruni varð í Skeifunni í Reykjavík í júlí 2014, en stefnandi rak verslun í einni af þeim fasteignum sem brann. Stefnandi hafði m.a. keypt rekstrarstöðvunartryggingu hjá stefnda og greiddi stefndi stefnanda bætur á grundvelli hennar í júlí 2015. Stefnandi taldi að með þeirri greiðslu væri tjón hans ekki að fullu bætt og hafa aðilar deilt um uppgjör bóta úr þeirri tryggingu allar götur síðan þá. Í þessu máli var stefndi talinn hafa bætt stefnanda tjón hans að fullu og var stefndi því sýknaður af kröfum stefnanda.