Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lykilorð: Fjármálastofnun

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 27. apríl 2023

E-111/2017

Landsbankinn hf (Ólafur Eiríksson lögmaður) gegn BPS ehf., Eignarhaldsfélaginu Borgun slf. (Snorri Stefánsson lögmaður) og SaltPay IIB hf. og og Hauki Oddssyni (Gestur Jónsson lögmaður)

Ekki þótti vera sannað af hálfu stefnanda, Landsbankans hf., grundvöllur að skaðabótaskyldu stefndu vegna ætlaðs tjóns stefnanda vegna sölu stefnanda á hlut hans í SaltPay IIB hf. (áður Borgunar hf.). Var mat dómsins að ósannað væri að nokkur sá ólögmætis- eða sakargrundvöllur sem stefnandi byggði á í málinu ætti við, nema þá vissir annmarkar í reikningsskilum stefnda SaltPay IIB hf. í ársreikningi þess fyrir árið 2013. Að mati dómsins þótti þó ekki vera sýnt fram á að þeir annmarkar gætu talist vera ótvíræð orsök þess að stefnandi hafi ekki verið meðvitaður um stöðu SaltPay IIB hf. gagnvart Visa Europe eða að SaltPay IIB hf. kynni þá að eiga réttindi byggð á valréttarsamningi. Að mati dómsins hafi það, með hliðsjón af öllu fyrirliggjandi, einkum verið framganga stefnanda sjálfs sem seljanda, að afla sér ekki nauðsynlegra upplýsinga um hið selda sem þó hafi verið ríkt tilefni til að gera í ljósi aðstæðna, sem leitt hafi til þess að stefnandi varð mögulega af söluhagnaði við söluna og í ljósi þessa voru allir stefndu í málinu sýknaðir.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. mars 2023

E-6256/2020

Frigus II ehf (Arnar Þór Stefánsson lögmaður) gegn Lindarhvoli ehf íslenska ríkinu (Steinar Þór Guðgeirsson lögmaður)

Stefndu Lindarhvoll ehf. og íslenska ríkið voru í málinu sýknaðir af dómkröfum stefnanda Frigus II ehf. Varðandi aðal- og varakröfu stefnanda, þá komst dómurinn að þeirri niðurstöðu, m.t.t. þess hvernig kröfugerð í málinu væri sett fram og rökstudd af hálfu stefnanda, að sýkna bæri stefndu af þeim dómkröfum stefnanda á grundvelli aðildarskorts, þar sem þær mögulegu kröfur hafi tilheyrt Kviku-banka hf., fram til þess að þær voru ótvírætt framseldar til stefnanda. Hvað varðar þrautavarakröfu stefnanda, sem tók mið af gildu framsali mögulegra kröfuréttinda frá Kviku-banka hf. til stefnanda, þá komst dómurinn að þeirri niðurstöðu að einnig yrði að sýkna stefndu af þeirri dómkröfu stefnanda í málinu, þar sem að ósannað væri að Kviku-banka hf. hefði verið mismunað í umræddu söluferli af hálfu stefndu, auk þess sem ósannað væri að brot hafi átt sér stað í söluferlinu af hálfu stefndu sem hafi orðið þeim aðila til tjóns.