Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lykilorð: Fasteign.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. mars 2022

E-4877/2021

A (Björgvin Þórðarson lögmaður) gegn TM tryggingum hf (Valgeir Pálsson lögmaður)

Stefnandi slasaðist er hún féll í stiga líkamsræktarstöðvar. Slysið varð á tíma þegar ekki naut dagsbirtu og komst dómurinn að þeirri niðurstöðu að slysið hefði orðið vegna þess að í stiganum hafi ekki verið forsvaranleg lýsing og umbúnaður í stiganum þar með ekki verið nægilega öruggur. Var fallist á að rekstraraðili líkamsræktarstöðvarinnar ætti sök á tjóni stefnanda og bótaskylda tryggingafélags stöðvarinnar viðurkennd.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. desember 2021

E-129/2021

Danuta Strzalkowska (Svavar Daðason lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Rakel Jensdóttir lögmaður)

Íslenska ríkið sýknað af bótakröfu konu sem varð fyrir líkamstjóni við fall fyrir utan Landspítala í Fossvogi. Ekki var talið sýnt fram á saknæma háttsemi starfsmanna spítalans við hálkuvarnir fyrir utan spítalann og því talið að um óhappatilvik hefði verið að ræða.