Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lykilorð: Varanleg örorka.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. apríl 2022

E-1365/2020

A (Guðmundur Ómar Hafsteinsson lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Kristín Edwald lögmaður)

Stefnandi varð fyrir líkamstjóni í árekstri í október 2017. Í málinu var niðurstaða undirmats um umfang tjóns lögð til grundvallar þar sem tognun á hálshrygg var talin meðal varanlegra afleiðinga slyssins. Var gagnstæð niðurstaða yfirmats ekki talin rökstudd á fullnægjandi máta og ekki talin hafa stuðning í öðrum fyrirliggjandi gögnum málsins. Var það niðurstaða dómsins að matsgerðir þar sem niðurstöður eru mismunandi skuli metnar að verðleikum hverju sinni fyrir dómstólum enda skeri dómstólar úr um sönnunargildi gagna sem aflað er, þ.m.t. sönnunargildi matsgerða. Þá var fallist á að leggja til grundvallar 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga og meta árslaun sérstaklega þar sem óvenjulegar aðstæður væru fyrir hendi og sýnt fram á að annar mælikvarði væri réttari á líklegar framtíðartekjur stefnanda en lágmarkstekjuviðmið.