Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Stöðvun gerðar

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. janúar 2024

Y-3885/2023

Þb. Karls Emils Wernerssonar (Árni Þórólfur Árnason lögmaður) gegn Föxum ehf (Ólafur Eiríksson lögmaður)

Sóknaraðili krafðist hjá sýslumanni fjárnáms hjá varnaraðila fyrir áföllnum dagsektum samkvæmt 4. mgr. 114. gr. laga nr. 91/1991 og dómi Landsréttar, auk “áfallandi dráttarvaxta”. Sýslumaður ákvað að stöðva gerðina eftir að varnaraðili greiddi höfuðstól hinna áföllnu dagsekta. Vísaði sóknaraðili þeirri ákvörðun til héraðsdóms, krafðist þess að hún yrði ómerkt og að lagt yrði fyrir sýslumann að halda áfram gerðinni. Var þeirri kröfu hafnað og ákvörðun sýslumanns staðfest.