Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Stórfelld eignaspjöll

Hæstiréttur birt 28. febrúar 2008

511/2007

Ákæruvaldið gegn Davíð Þór Gunnarssyni, Ívari Aroni Hill Ævarssyni, Pétri Áskeli Svavarssyni, Ágústi Má Sigurðssyni (Hilmar Ingimundarson hrl), Jóni Einari Randverssyni (Kristján Stefánsson hrl) og Stefáni Blackburn (Sveinn Andri Sveinsson hrl)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

D var sakfelldur fyrir fjölda auðgunarbrota, nytjastuldi, húsbrot, brot gegn valdstjórninni og umferðar- og fíkniefnalagabrot. Með brotum sínum rauf hann skilorð eldri dóms þar sem sex af níu mánaða fangelsisrefsingu var skilorðsbundin. Sá hluti var tekinn upp og dæmdur með og var refsing hans ákveðin fangelsi í þrjú ár og sex mánuði. Í var sakfelldur fyrir fjölda auðgunarbrota, þar af þrjú ránsbrot, nytjastuldi, stórfelld eignaspjöll ásamt umferðarlaga- og fíkniefnabrotum. Refsing hans var ákveðin þriggja ára fangelsi. Þá var P sakfelldur fyrir ýmis auðgunar- og umferðarlagabrot og hann dæmdur til sex mánaða fangelsisvistar. J var einnig sakfelldur fyrir auðgunar-, umferðarlaga- og fíkniefnabrot og hann dæmdur í 14 mánaða fangelsi. Á var ennfremur sakfelldur fyrir þrjú ránsbrot. Fyrir Hæstarétt voru lagðar upplýsingar um að hann hefði breytt lífi sínu mjög til betri vegar auk þess sem hann hafði ekki áður verið fundinn sekur um refsiverða háttsemi sem gat haft áhrif á ákvörðun refsingar. Með hliðsjón af þessu var refsing hans ákveðin skilorðsbundið fangelsi í 12 mánuði. Að lokum var S sakfelldur fyrir þrjár líkamsárásir, ýmis auðgunarbrot, þar á meðal þrjú fullframin rán og eina ránstilraun, nytjastuld, fíkniefnabrot og umferðarlagabrot. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að ein líkamsárásanna var fólskuleg og stórhættuleg og hefði hæglega getað leitt til bana þess sem fyrir henni varð. Á hinn bóginn var tekið tillit til þess að hann var á 15. og 16. aldursári þegar hann framdi brotin. Refsing hans var ákveðin fangelsi í fjögur ár.