Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

13 dómar fundust

Lykilorð: Slit á fjárfélagi sambúðarfólks

Héraðsdómur Austurlands birt 8. apríl 2011

Q-2/2010

Hafnað var kröfu K um hlutdeild í verðmæti einkahlutafélags í eigu M en kröfum hennar um hlutdeild í öðrum eignum hans vísað frá dómi vegna vanreifunar. Aðilarnir höfðu verið í óvígðri sambúð um 12 ára skeið og áttu saman tvö börn.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. nóvember 2008

Q-1/2008

Við opinber skipti til fjárslita við lok óvígðrar sambúðar krafðist K þess aðallega að viðkennt yrði að eignarhluti hennar í fasteigninni V væri 58,82% og M 41,18% og að hvor aðili um sig beri helmingsábyrgð á eftirstöðvum veðláns. Krafa konunnar var tekin til greina. Þá var krafa K um að hún ætti helmingshlutdeild í fyrirtæki sem aðilar stofnuðu á sambúðartímanum tekin til greina. Þá var úrskurðað að aðilar bæru jafna ábyrgð á lánum vegna reksturs fyrirtækisins

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. júní 2008

Q-1/2008

K gegn M Með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur

Við opinber skipti til fjárslita við lok óvígðrar sambúðar krafðist K þess aðallega að viðkennt yrði að eignarhluti hennar í fasteigninni V væri 58,82% og M 41,18% og að hvor aðili um sig beri helmingsábyrgð á eftirstöðvum veðláns. Fyrir lá að konan, sem ein var þinglesin eigandi eignarinnar, lagði fjármuni til átti við kaupa á henni. Þar sem manninum þótti ekki hafa tekist sönnun fyrir því að hann hefði lagt til kaupa á eigninni annað en helmingsþátttöku í greiðslu afborgana af láni sem tekið var til að fjármagna kaupin var krafa konunnar tekin til greina. Þá var krafa K um að hún ætti helmingshlutdeild í fyrirtæki sem aðilar stofnuðu á sambúðartímanum tekin til greina. Þá var úrskurðað að aðilar bæru jafna ábyrgð á lánum vegna reksturs fyrirtækisins.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. febrúar 2008

Q-16/2007

Við sambúðarslit M og K, sem voru í óvígðri sambúð í rúm tvö ár, krafðist M m.a. viðurkenningar á að hann væri einn eigandi fasteignar aðila. Þótti M hafa tekist sönnun um það að allt fé til fasteignakaupanna hefði komið frá honum og var því orðið við kröfu hans.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. mars 2007

Q-8/2005

Ósættanlegur ágreiningur reis hjá skiptastjóra í tengslum við opinber skipti á milli fyrrverandi sambýlisfólks um gildi afsals vegna fasteignar. Aðalkrafa sóknaraðila laut að því að vikið yrði frá þinglýstum eignarheimildum. Af hálfu dómsins var ekki á hana fallist.