Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lykilorð: Skipsleiga

Hæstiréttur birt 17. janúar 2008

245/2007

Seafood Trading á Íslandi ehf (Hróbjartur Jónatansson hrl) gegn Farocan Incorporated (Othar Örn Petersen hrl)

Í tengslum við fyrirhuguð viðskipti einkahlutafélagsins S, eistneska félagsins D og kanadíska félagsins F um leigu og útgerð fiskiskips, sem sérstakur samningur var gerður um milli aðila í júlí 2005, var gefin út bankaábyrgð af sparisjóðinum S að fjárhæð 200.000 kanadískra dollara sem stíluð var á F. Eftir að slitnaði upp úr samstarfi aðila í október 2005 krafðist F greiðslu á 143.673,66 kanadískra dollara á grundvelli bankaábyrgðarinnar en félagið taldi sig hafa orðið fyrir tjóni vegna samstarfsslitanna sem S bæri ábyrgð á. S taldi kröfuna ólögmæta. Fór félagið fram á að greiðslan yrði kyrrsett og á það féllst sýslumaður. Óumdeilt var að sparisjóðinum hafi borið að inna umrædda fjárhæð af hendi vegna afdráttarlauss orðalags um það í bankaábyrgðinni og krafði sparisjóðurinn S um greiðslu hennar eftir að henni hafði verið ráðstafað inn á sérstakan bankareikning. S greiddi þessa kröfu sparisjóðsins og krafðist að því loknu skaðabóta úr hendi F er námu þeirri fjárhæð auk staðfestingar á kyrrsetningargerðinni. Á það var fallist að F hefði borið ábyrgð á því að upp úr viðskiptum aðila slitnaði. Ákvæði samningsins frá júlí 2005 voru ekki talin fela það í sér að F hefði getað látið farast fyrir að sinna verkskyldum sínum og á grundvelli þess gert S ábyrgan fyrir kostnaði sem hann hefði haft af því að horfið var frá áformum aðila. Með vísan til þessa var ekki talið að F hefði fært sönnur á að félagið ætti kröfu á hendur S á grundvelli samnings málsaðila. Ekki hefðu verið efnislegar forsendur fyrir því að F mætti krefjast greiðslu úr bankaábyrgðinni. Hefði félagið því brotið rétt á S með því að nýta sér ákvæði ábyrgðaryfirlýsingarinnar til að fá kröfu sína greidda úr ábyrgðinni. Með greiðslu S til sparisjóðsins var talið að félagið hefði orðið fyrir fjártjóni er nam þeirri greiðslu. Með hliðsjón af þessu var fallist á kröfur S.

Hæstiréttur birt 29. mars 2001

362/2000

Halldór Steinþórsson (Jóhann Halldórsson hrl) gegn Atlantsskipi ehf (Lára Valgerður Júlíusdóttir hrl)

X var ákærður fyrir tilraun til þjófnaðar. Var honum gefið að sök að hafa í fjögur skipti reynt að brjótast inn í fyrirtæki í auðgunarskyni. Var hann sakfelldur fyrir að hafa reynt það í þrígang en í einu tilviki þótti það ekki fyllilega sannað. Með hliðsjón af löngum brotaferli X var honum gert að sæta fangelsi í 12 mánuði.

Hæstiréttur birt 29. mars 2001

361/2000

Agnar Guðmundsson (Jóhann Halldórsson hrl) gegn Atlantsskipi ehf (Lára Valgerður Júlíusdóttir hrl)

X var ákærður fyrir tilraun til þjófnaðar. Var honum gefið að sök að hafa í fjögur skipti reynt að brjótast inn í fyrirtæki í auðgunarskyni. Var hann sakfelldur fyrir að hafa reynt það í þrígang en í einu tilviki þótti það ekki fyllilega sannað. Með hliðsjón af löngum brotaferli X var honum gert að sæta fangelsi í 12 mánuði.