Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Samsömun

Landsréttur birt 12. október 2023

191/2021

L Events ehf Lifandi Viðburðir ehf og Guðmundur Hreiðarsson Viborg (Gestur Gunnarsson lögmaður) gegn K2 Agency Limited (Jón Gunnar Ásbjörnsson lögmaður)

K, umboðsfyrirtæki hljómsveitarinnar S, höfðaði mál á hendur LE ehf., L ehf., LV ehf. og G vegna kröfu um greiðslu skuldar vegna tónlistarflutnings hljómsveitarinnar á tónlistarhátíðinni SS sumarið 2018. K hafði áður höfðað mál til heimtu kröfunnar á hendur SP ehf., félaginu sem hélt tónlistarhátíðina, og fyrirsvarsmanni þess félags, FÓ. Félagið var síðar úrskurðað gjaldþrota og lauk skiptum á búinu án þess að krafan fengist greidd. Máli K gegn FÓ lyktaði á hinn bóginn með því að FÓ var gert að greiða K fjárkröfuna sem um ræðir á grundvelli ábyrgðaryfirlýsingar. K taldi LE ehf. greiðsluskylt gagnvart sér á grundvelli ábyrgðaryfirlýsingar framkvæmdastjóra félagsins í fjölmiðlum. Krafa K gagnvart L ehf., LV ehf. og G byggði á því að verð- mætum hafi með saknæmum og ólögmætum hætti verið ráðstafað frá SP ehf. áður en það félag var tekið til gjaldþrotaskipta. Hafi þær ráðstafanir verið til hagsbóta fyrir framangreinda aðila svo að varðaði skaðabótaábyrgð en vegna náinna eigna- og stjórnunartengsla félaganna yrði að samsama þá með SP ehf. á grundvelli reglna félagaréttar þar um. Til vara byggði K á því að L ehf., LV ehf. og G væru bundnir af framangreindri ábyrgðaryfirlýsingu framkvæmdastjóra LE ehf. Með hinum áfrýjaða dómi var fallist á kröfur K um að L ehf., LV ehf., G og LE ehf. yrði óskipt gert að greiða fjárkröfu K. Með dómi Landsréttar 27. maí 2022 í málinu var LE ehf. sýknað af kröfu K en L ehf., LV ehf. og G sýknaðir af henni að svo stöddu. Með dómi Hæstaréttar 4. apríl 2023 í máli nr. 49/2022 var staðfest niðurstaða Landsréttar um sýknu LE ehf. en niðurstaða um sýknu L ehf., LV ehf. og G að svo stöddu ómerkt og þeim þætti málsins vísað til Landsréttar til löglegrar meðferðar og dómsálagningar að nýju. Í dómi Landsréttar var rakið að L ehf., LV ehf. og G hafi borið fyrir sig að K hafi ekki sýnt fram á hann hafi orðið fyrir tjóni við framsal eigna SP ehf. til LV ehf. og var í því sambandi vísað til gagna sem voru lögð fram fyrir Landsrétt. Taldi Landsréttur að ákvæði 2. mgr. 163. gr. laga nr. 91/1991 stæði því ekki því ekki vegi að litið yrði til þessara gagna við meðferð málsins, þótt réttilega hefði mátt leggja þau fram á fyrri stigum málsins. Í dómi Landsréttar var komist að þeirri niðurstöðu að stjórnendur félaganna sem komu að ráðstöfun eigna félaganna hafi með saknæmum og ólögmætum hætti valdið K fjártjóni sem L ehf. og LV ehf. beri skaðabótaábyrgð á. Þá var komist að þeirri niðurstöðu að G beri einnig ábyrgð á tjóni K á grundvelli almennra reglna skaðabótaréttar. Var L ehf., LV ehf. og G óskipt gert að greiða fjárkröfu G eins og hún var sett fram fyrir Landsrétti.