Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

4 dómar fundust

Lykilorð: Samkeppnislög

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 26. júní 2024

E-6205/2023

Síminn hf (Halldór Brynjar Halldórsson lögmaður) gegn Samkeppniseftirlitinu (Margrét Helga Kr. Stefánsdóttir lögmaður)

Stefnandi, Síminn hf., krafðist ógildingar á ákvörðun stefnda Samkeppniseftirlitsins nr. 24/2023, þar sem kröfum hans um niðurfellingu sáttar aðilanna frá 23. janúar 2015, sbr. ákvörðun stefnda nr. 6/2015, var að mestu hafnað. Þá krafðist stefnandi jafnframt viðurkenningar á því að skilyrði ákvörðunarorða ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins nr. 6/2015 væru úr gildi fallin. Í dóminum var fallist á með stefnanda að rannsókn stefnda vegna ákvörðunar nr. 24/2023 hefði að hluta verið ábótavant hvað laut að mörkuðum málsins. Þá var jafnframt talið að skort hefði á rökstuðning fyrir nauðsyn þess að skilyrði sáttar aðila héldust að mestu óbreytt, m.a. þar sem ekki hefði með fullnægjandi hætti verið lagt mat á tengsl stefnanda og Mílu ehf. eftir að sá fyrrnefndi seldi síðarnefnda félagið. Á grundvelli heildarmats var fallist á með stefnanda að ógilda ákvörðun stefnda nr. 24/2023. Hins vegar var ekki fallist á viðurkenningarkröfu stefnanda m.a. þar sem ógilding á fyrrnefndri ákvörðun girti ekki fyrir að stefndi tæki málið fyrir að nýju.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. október 2020

E-3200/2019

Hringiðan ehf./Vortex Inc (Eiríkur Gunnsteinsson lögmaður) gegn Símanum hf (Hallmundur Albertsson lögmaður)

Stefndi var talinn hafa sýnt af sér háttsemi á samkeppnismarkaði sem var til þess fallin að valda stefnanda tjóni. Jafnframt var talið að brot stefnda tengdust neikvæðum breytingum á rekstrarumhverfi stefnanda. Stefnandi var talinn hafa sýnt fram á tjón og var stefndi dæmdur til greiðslu skaðabóta á þeim grunni.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. október 2020

E-3199/2019

Snerpa ehf (Eiríkur Gunnsteinsson lögmaður) gegn Símanum hf (Hallmundur Albertsson lögmaður)

Stefndi var talinn hafa sýnt af sér háttsemi á samkeppnismarkaði sem var til þess fallin að valda stefnanda tjóni. Jafnframt var talið að brot stefnda tengdust neikvæðum breytingum á rekstrarumhverfi stefnanda. Stefnandi var talinn hafa sýnt fram á tjón og var stefndi dæmdur til greiðslu skaðabóta á þeim grunni.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. október 2020

E-3198/2019

Tölvun ehf (Eiríkur Gunnsteinsson lögmaður) gegn Símanum hf (Hallmundur Albertsson lögmaður)