Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

5 dómar fundust

Lykilorð: Sambúðarfólk - Annað

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. nóvember 2022

E-5408/2021

A (Ómar R. Valdimarsson lögmaður) gegn B (Gunnar Ingi Jóhannsson lögmaður)

Stefnda var sýknuð af kröfu stefnanda um endurgreiðslu fjárhæðar sem stefnandi hélt fram að hefði verið lán til hennar. Þótt um fyrrum sambúðarmaka væri að ræða var málið rekið sem skuldamál en ekki fjárslitamál. Að mati dómsins var ekki hægt að draga afdráttarlausar ályktanir af gögnum málsins um að stefnandi hefði veitt sambúðarmaka sínum lán, hverrar fjárhæðar það hafi þá verið eða með hvaða skilmálum. Þótti ósannað gegn mótmælum stefndu að tilekin fjárhæð sem stefnandi millifærði á stefndu hefði verið lán sem henni bæri að endurgreiða

Héraðsdómur Reykjaness birt 8. mars 2021

E-1537/2020

Stefndu gert að endurgreiða stefnanda, fyrrverandi sambýlismanni sínum, framlag hans til kaupa stefndu á fasteign á sambúðartíma þeirra að frádregnu endurgjaldi stefnanda fyrir afnot af eigninni eftir sambúðarslitin og verðmæti gardína sem stefnandi fjarlægði úr eigninni.