Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Sakaukasök

Landsréttur birt 12. mars 2021

65/2020

LANDSRÉTTUR og Dómur föstudaginn 12. mars 2021. og Mál nr. 65/2020: og Heilbrigð hús ehf. (Einar Gautur Steingrímsson lögmaður) og Kópavogsbær (Ívar Pálsson lögmaður) gegn Fríðu Einarsdóttur og Georg Hilmarssyni (Sigurður Jónsson lögmaður)

F og G höfðuðu mál gegn K og H ehf. til réttargæslu og kröfðust þess að felld yrði úr gildi breyting á deiliskipulagi vegna lóðanna Brekkuhvarfs 20 og 20a. Einnig að fellt yrði úr gildi byggingarleyfi sem K hefði gefið út vegna Brekkuhvarfs 20a. Síðar höfðuðu F og G sakauka á hendur H ehf. til þess að félaginu yrði gert að þola staðfestingu lögbanns sem sýslumaður hefði lagt á við því að H ehf. héldi áfram framkvæmdum á lóðinni að Brekkuhvarfi 20a, sem og að þola dóm um fyrrgreindar kröfur gegn K. Í dómi Landsréttar var krafa F og G gegn H ehf. um ógildingu á deiliskipulagi og byggingarleyfi í sakaukasök vísað frá héraðsdómi með vísan til niðurlags 3. mgr. 19. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Þá var kröfu F og G um staðfestingu lögbanns jafnframt vísað frá dómi vegna vanreifunar, sbr. e-lið 1. mgr. 80. gr. sömu laga. Loks var kröfu F og G gegn K um ógildingu byggingarleyfisins vísað frá héraðsdómi þar sem H ehf. hefði ekki verið stefnt í frumsök í málinu að því leyti og úr því yrði ekki bætt með sakaukasök. Til þess var vísað í málinu að ekkert væri fram komið um að hin umdeilda breyting á deiliskipulaginu væri ekki í samræmi við gildandi aðalskipulag eða að nýtingarhlutfall og aðrar skipulagsforsendur sem þar væru ákvarðaðar fyrir lóðina Brekkuhvarf 20a viki svo frá því sem gilti um aðrar lóðir í götunni að ógildingu varðaði. Þá var hvorki fallist á með F og G að K hefði ekki uppfyllt rannsóknarskyldu sína við deiliskipulagsbreytinguna né að með deiliskipulaginu væri gengið gegn eignarréttarlegum hagsmunum þeirra. Loks voru ekki taldar forsendur til ógildingar deiliskipulagsins með vísan til brunaöryggis eða að reglur nábýlisréttar leiddu til þess að fella bæri það úr gildi. Var K því sýknaður af kröfu F og G um að felld yrði úr gildi breyting á deiliskipulagi vegna Brekkuhvarfs 20 og 20a.