Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lykilorð: Rangar skýrslur
X var ákærður fyrir líkamsárás með því að hafa ráðist á A fyrir utan skemmtistað, slegið hann niður, sest klofvega yfir hann og slegið hann með bjórflösku, sem brotnaði við það, og slegið hann hnefahöggum svo A hlaut mar yfir vinstri augabrún, mar undir vinstra auga, bólgu á öllum hægri helmingi andlits og eymsli í kinnbeini og neðri kjálka og með því að beita brotinni flöskunni til að skera A þannig að hægra eyra var meira og minna tætt og eyrnavængur sundurskorinn, sbr. 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga. Var refsing X ákveðin fangelsi í 4 mánuði, en fullnustu hennar frestað og hún látin falla niður að liðnum 3 árum með hliðsjón af ungum aldri og sakaferli X. Þá var X gert að greiða A skaðabætur að fjárhæð 231.111 krónur.