Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

5 dómar fundust

Lykilorð: Réttaraðstoð

Landsréttur birt 13. júlí 2022

448/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn X ehf (Ólafur Örn Svansson lögmaður)
Málaflokkur: Önnur sakamál

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem fallist var á kröfu sóknaraðila um að varnaraðila yrði gert skylt að afhenda sóknaraðila nánar tilgreindar upplýsingar og afrit af nánar tilgreindum gögnum tengdum netþjóni. Málinu var vísað frá Landsrétti þar sem kæra hafði borist héraðsdómi eftir að kærufrestur samkvæmt 2. mgr. 193. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála var liðinn.

Landsréttur birt 26. mars 2020

159/2020

Héraðssaksóknari (Ólafur Hallgrímsson saksóknarfulltrúi) gegn X hf. (enginn)
Lykilorð: Kærumál. Réttaraðstoð.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu H um að X yrði gert skylt að afhenda H upplýsingar tengdum tilteknum bankareikningi hjá X, samkvæmt réttarbeiðni frá erlendu ríki. Í úrskurði Landsréttar kom fram að lagafyrirmæli 22. gr. laga nr. 13/1984 um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum yrðu ekki skilin með öðrum hætti en að efni réttarbeiðni yrði ekki framkvæmt fyrr en að fenginni ákvörðun ráðuneytis um hvort orðið skuli við henni og að undanfari slíkrar ákvörðunar væri álitsgerð ríkissaksóknara sem meðal annars tæki til þess hvort lagaskilyrði til þvingunaraðgerða væru til staðar. Í málinu lá hvorki fyrir slík álitsgerð né ákvörðun ráðuneytis um að verða við beiðni um réttaraðstoð. Þá var ekki sýnt fram á að fyrir lægi samningur við erlent ríki um að málið skyldi falið öðru stjórnvaldi en ráðuneyti til afgreiðslu, sbr. 7. mgr. 22. gr. laga nr. 13/1984. Var því talið að ekki væri unnt að verða við kröfu H.

Landsréttur birt 26. mars 2020

158/2020

Héraðssaksóknari (Ólafur Hallgrímsson saksóknarfulltrúi) gegn X hf. (enginn)
Lykilorð: Kærumál. Réttaraðstoð.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu H um að X yrði gert skylt að afhenda H upplýsingar um bankareikninga og fleira hjá X í nafni tiltekins aðila, samkvæmt réttarbeiðni frá erlendu ríki. Í úrskurði Landsréttar kom fram að ekki yrði séð að meðferð umræddrar réttarbeiðni hefði verið í samræmi við lögbundna málsmeðferð og að H hefði ekki skýrt á hvaða grundvelli hann teldi heimilt að víkja frá þeirri málsmeðferð sem kveðið væri á um í 22. gr. laga nr. 13/1984 um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum.

Landsréttur birt 5. apríl 2019

242/2019

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Einar Laxness aðstoðarsaksóknari) gegn X (enginn)
Lykilorð: Kærumál. Réttaraðstoð.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu L um að X yrði gert að veita L tilteknar upplýsingar um IP tölu, samkvæmt réttarbeiðni frá erlendu ríki. Í úrskurði Landsréttar kom fram að ekki lægi fyrir að skilyrði væru fyrir því að saksókn vegna ætlaðs brots næði fram að ganga hér á landi. Samkvæmt 4. mgr. 22.gr. laga nr. 13/1984 um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum væri því óheimilt að verða við beiðninni.