Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lykilorð: Ráðningasamningur
Ágreiningur þessa máls laut að því hvort stefnandi hefði brotið svo alvarlega gegn reglum um trúnaðarskyldur að það réttlæti fyrirvaralausa uppsögn með þeim afleiðingum að hann ætti ekki rétt á launum í uppsagnarfresti, auk þess sem áunnið orlof og áunnar bónusgreiðslu ættu að falla niður. Í málinu var ekki fallist á að lög nr. 131/2020 fælu í sér breytingu á þeirri dómaframkvæmd að ekki þyrfti lengur að meta í hverju tilviki hversu alvarlegt trúnaðarbrotið væri til að það gæti réttlætt fyrirvaralausa uppsögn. Háttsemi stefnanda sem fól í sér trúnaðarbrot var ekki það vítaverð að hún gæti réttlætt fyrirvaralausa uppsögn, auk þess sem stefnandi átti rétt á óskertum launum til þess tíma þegar riftun var lýst yfir. Kröfu stefnanda um miskabætur var hins vegar hafnað.