Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lykilorð: Ráðningarsamband
Talið var að ráðningarsamband stefnanda við stofnun stefnda hefði haldið áfram þótt tímabundinn ráðningarsamningur væri útrunninn, enda hefði stefnandi mætt til vinnu samkvæmt vaktaplani og vinnuframlag hennar ekki verið afþakkað. Var jafnframt talið að stefndi hefði ekki sýnt fram á að ráðningarsamband hefði átt að vara skemur en stefnandi hélt fram, en í ljósi almennra reglna og stöðu aðila í ráðningarsambandinu þótti stefndi bera ábyrgð á óljósu efni ráðningarsambandins hvað þetta varðaði. Hafði stofnun hans enda ekki sinnt þeirri skyldu að gera skriflegan samning við stefnanda. Var stefndi því dæmdur til að greiða stefnanda veikindalaun.