Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
3 dómar fundust
Lykilorð: Pakkaferðir
S höfðaði mál á hendur F ehf. og krafðist endurgreiðslu vegna ferðar sem hann hafði bókað hjá F og greitt að fullu til Norður-Ítalíu en afpantað daginn fyrir brottför vegna útbreiðslu COVID-19 faraldurs. Hæstiréttur taldi ótvírætt að þegar ferðin var afpöntuð hefðu aðstæður á ákvörðunarstað verið bæði óvenjulegar og óviðráðanlegar og haft veruleg áhrif á framkvæmd fyrirhugaðrar ferðar S í skilningi 3. mgr. 15. gr. laga nr. 95/2018 um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun. Ekki var talið hafa úrslitaþýðingu hvort íslensk stjórnvöld hefðu formlega skilgreint alla Ítalíu sem svæði með mikla smitáhættu á þeim degi sem ferðin var afpöntuð heldur væri nægilegt að vissar líkur væru á áhættu fyrir heilbrigði S og fjölskyldu hans vegna farsóttar. Þá var ekki fallist á að lagafyrirmæli um rétt S til endurgreiðslu og beiting hennar við þessar aðstæður væru óhóflega íþyngjandi fyrir eignarrétt eða atvinnustarfsemi F í ljósi þeirrar neytendaverndar sem lögin stefndu að. Var því talið að skilyrði 15. gr. laga nr. 95/2018 til að afpanta ferðina með rétti til fullrar endurgreiðslu væru uppfyllt og að F bæri áhættuna af því að ferð væri afpöntuð af þessum ástæðum. Var staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um rétt S til fullrar endurgreiðslu ásamt dráttarvöxtum frá því að 14 dagar voru liðnir frá afpöntun ferðarinnar.
Ó höfðaði mál á hendur F ehf. og krafðist endurgreiðslu vegna ferðar sem hann hafði bókað hjá F og greitt að fullu til Norður-Ítalíu en afpantað daginn fyrir brottför vegna útbreiðslu COVID-19 faraldurs. Hæstiréttur taldi ótvírætt að þegar ferðin var afpöntuð hefðu aðstæður á ákvörðunarstað verið bæði óvenjulegar og óviðráðanlegar og haft veruleg áhrif á framkvæmd fyrirhugaðrar ferðar Ó í skilningi 3. mgr. 15. gr. laga nr. 95/2018 um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun. Ekki var talið hafa úrslitaþýðingu hvort íslensk stjórnvöld hefðu formlega skilgreint alla Ítalíu sem svæði með mikla smitáhættu á þeim degi sem ferðin var afpöntuð heldur væri nægilegt að vissar líkur væru á áhættu fyrir heilbrigði Ó og fjölskyldu hans vegna farsóttar. Þá var ekki fallist á að lagafyrirmæli um rétt Ó til endurgreiðslu og beiting hennar við þessar aðstæður væru óhóflega íþyngjandi fyrir eignarrétt eða atvinnustarfsemi F í ljósi þeirrar neytendaverndar sem lögin stefndu að. Var því talið að skilyrði 15. gr. laga nr. 95/2018 til að afpanta ferðina með rétti til fullrar endurgreiðslu væru uppfyllt og að F bæri áhættuna af því að ferð væri afpöntuð af þessum ástæðum. Var staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um rétt Ó til fullrar endurgreiðslu ásamt dráttarvöxtum frá því að 14 dagar voru liðnir frá afpöntun ferðarinnar.
G höfðaði mál á hendur F ehf. og krafðist endurgreiðslu vegna ferðar sem hann hafði bókað hjá F og greitt að fullu til Norður-Ítalíu en afpantað daginn fyrir brottför vegna útbreiðslu COVID-19 faraldurs. Hæstiréttur taldi ótvírætt að þegar ferðin var afpöntuð hefðu aðstæður á ákvörðunarstað verið bæði óvenjulegar og óviðráðanlegar og haft veruleg áhrif á framkvæmd fyrirhugaðrar ferðar G í skilningi 3. mgr. 15. gr. laga nr. 95/2018 um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun. Ekki var talið hafa úrslitaþýðingu hvort íslensk stjórnvöld hefðu formlega skilgreint alla Ítalíu sem svæði með mikla smitáhættu á þeim degi sem ferðin var afpöntuð heldur væri nægilegt að vissar líkur væru á áhættu fyrir heilbrigði G og fjölskyldu hans vegna farsóttar. Þá var ekki fallist á að lagafyrirmæli um rétt G til endurgreiðslu og beiting hennar við þessar aðstæður væru óhóflega íþyngjandi fyrir eignarrétt eða atvinnustarfsemi F í ljósi þeirrar neytendaverndar sem lögin stefndu að. Var því talið að skilyrði 15. gr. laga nr. 95/2018 til að afpanta ferðina með rétti til fullrar endurgreiðslu væru uppfyllt og að F bæri áhættuna af því að ferð væri afpöntuð af þessum ástæðum. Var staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um rétt G til fullrar endurgreiðslu ásamt dráttarvöxtum frá því að 14 dagar voru liðnir frá afpöntun ferðarinnar.