Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lykilorð: Pöntunarkaup

Hæstiréttur birt 19. janúar 2017

411/2016

Thorice ehf (Hlynur Halldórsson hrl) gegn B Cool Consult A/S (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hrl)

B höfðaði mál og krafði T ehf. um greiðslu á eftirstöðvum kaupverðs á vélasamstæðu. T ehf. hafði samið við M um sölu á vélasamstæðu en B hafði tekið að sér gagnvart T ehf. ákveðna þætti við framleiðslu og uppsetningu hennar. T ehf. krafðist sýknu og skaðabóta þar sem að vélasamstæðan hefði verið gölluð. Með vísan til hinnar almennu meginreglu sem fram kemur í 6. gr. laga nr. 50/2000 um lausafjárkaup var talið að leggja yrði til grundvallar að söluhluturinn hefði verið afhentur við verksmiðju T ehf. enda hefði B ekki tekið á sig neinar skuldbindingar gagnvart M. Áhættan af söluhlutunum hefði því flust við það yfir til T ehf. sem kaupanda sbr. 1. mgr. 13. gr. laga nr. 50/2000. Þá var talið að T ehf. hefði ekki sýnt fram á að vélasamstæðan hefði verið haldin göllum við afhendingu hennar eða að þeir væru til komnir sökum vanrækslu B. Var því fallist á kröfu B.

Hæstiréttur birt 31. mars 2011

548/2010

KNH ehf (Björn Jóhannesson hrl) gegn Idex ehf (Óskar Sigurðsson hrl)

Af hálfu K ehf. voru pantaðar þrjár stórar innkeyrsluhurðir hjá F ehf., sem I ehf. leiðir rétt sinn frá, vegna nýbyggingar sem félagið hafði í byggingu. K ehf. fékk pöntunarstaðfestingu 12. janúar 2009 og greiddi inn á kaupin 19. sama mánaðar. Í kjölfarið pantaði F ehf. hurðirnar frá dönskum framleiðanda, sem staðfesti pöntunina 22. janúar 2009. K ehf. óskaði eftir því 3. febrúar sama ár að hurðirnar yrðu afpantaðar hjá framleiðandanum, þar sem hann hefði keypt hurðir af þriðja aðila, en daginn eftir tilkynnti F ehf. að afpöntun væri ekki tæk þar sem framleiðslu væri lokið og hurðirnar biðu flutnings til Íslands. Í málinu krafði I ehf. K ehf. um greiðslu kaupverðs hurðanna, en deila aðila laut að því hvort K ehf. hefði verið afpöntun heimil, sbr. 2. mgr. 52. gr. laga nr. 50/2000 um lausafjárkaup. Í dómi héraðsdóms, sem staðfestur var í Hæstarétti, var talið að ekki væru uppfyllt skilyrði ákvæðisins fyrir afpöntun hurðanna þar sem slíkt hefði haft í för með sér verulegt óhagræði fyrir F ehf. Því til viðbótar vísaði Hæstiréttur til þess að K ehf. hefði fengið upplýst að framleiðslu hurðanna væri lokið og að ekkert lægi fyrir um hvort F ehf. gat samkvæmt þeim lögum, sem giltu um viðskipti félagsins við hinn danska framleiðanda, afpantað hurðirnar.