Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Netfang

Hæstiréttur birt 28. nóvember 2002

268/2002

United Parcel Service of America, Inc (Magnús H. Magnússon hrl) gegn Úps! ehf (Erla Svanhvít Árnadóttir hrl)
Lykilorð: Vörumerki. Lén. Netfang. Dagsektir.

U krafðist þess að viðurkennt yrði að auglýsingaþjónustunni Ú ehf. væri óheimilt að nota lénið ups.is og netfangið ups@ups.is auk þess sem hann krafðist þess að Ú ehf. yrði dæmt til að láta afskrá lénið og netfangið hjá Interneti á Íslandi hf. Var krafa U byggð á því að notkun Ú ehf. færi gegn vörumerkjarétti þess þar sem orðmerki þess UPS nyti verndar. Tekið var fram að U ætti skráð vörumerki hér á landi í flokki 35 sem tæki meðal annars til auglýsingastarfsemi. Hefði U hingað til ekki verið skylt að tilgreina sérstaklega þá vöru eða þjónustu sem vörumerkinu væri ætlað að taka til, sbr. 2. mgr. 66. gr. laga nr. 45/1997 um vörumerki en óumdeilt væri að fyrirtækið ræki ekki auglýsingaþjónustu. Ekki hefði verið höfðað ógildingarmál á hendur U samkvæmt 1. mgr. 25. gr. laganna af þessu tilefni. Þar sem vörumerkjaréttur U náði til auglýsingastarfsemi, sbr. 1. tl. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 45/1997, var Ú ehf. talið óheimilt að nota í atvinnustarfsemi sinni táknið ups sem væri eins og vörumerki U. Þá gæti 1. tl. 1. mgr. 6. gr. vörumerkjalaga ekki heldur heimilað Ú ehf. þessa notkun en táknið væri ekki samhljóða nafni þess og gæti notkunin á því gefið til kynna tengsl við U, sbr. 2. tl. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 45/1997. Var því fallist á kröfu U.