Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lykilorð: Lögtaksréttur
Á árunum 1987 til 1991 gaf LÍN út þrettán skuldabréf vegna námslána sem veitt voru H. Vanskil urðu á lánunum og höfðaði LÍN mál til innheimtu skuldarinnar. Talið var að krafa LÍN hafi samkvæmt fortakslausu ákvæði skuldabréfanna sjálfkrafa fallið í gjalddaga í framhaldi af vanskilum H 1. mars 1999. Í 3 tl. 3. gr. þágildandi laga nr. 14/1905 um fyrningu skulda og annarra kröfuréttinda væri kveðið á um að kröfur sem lögtaksrétt hafa fyrndust á fjórum árum. Með 3. mgr. 9. gr. laga nr. 72/1982 hafi LÍN verið veittur lögtaksréttur fyrir vangoldnum endurgreiðslum af skuld, svo og gjaldfelldum eftirstöðvun námslána. Samkvæmt þessu var talið að krafa LÍN hafi í heild verið fyrnd á árinu 2003 og var H því sýknuð.