Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
5 dómar fundust
Lykilorð: Kaupgjaldsmál
Stefndi var sýknaður af kröfu um laun og laun á uppsagnartíma.
Hafnað var kröfu stefnanda um launaauka samkvæmt úrskurði Kaupskrárnefndar varnarsvæða frá 23. desember 2005. Ekki var talið að stefnandi hefði verið ráðinn til vinnu hjá varnarliðinu á grundvelli starfslýsingar sem úrskurðurinn byggði á.
Stefnda dæmt til að greiða stefnanda umkrafin laun.
Deilt var um hvort varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli hefði verið heimilt að segja upp greiðslu dagslegs rútufargjalds til slökkviliðsmanna á Keflavíkurflugvelli. Upplýst var að þessum greiðslum hafði verið komið á með ákvörðun kaupskrárnefndar árið 1955. Með vísan til 6. gr. laga nr. 82/2000 um framkvæmd tiltekinna þátta í varnarsamstarfi Íslands og Bandaríkjanna, sem mælir fyrir um að kaupskrárnefnd úrskurði um starfskjör íslenskra starfsmanna varnarliðsins, var fallist á að varnarliðinu hefði ekki verið unnt að fella þessar greiðslur niður einhliða. Voru uppsagnirnar því dæmdar ógildar.
Deilt var um hvort varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli hefði verið heimilt að segja upp greiðslu dagslegs rútufargjalds og skerða greiðslu yfirvinnukaups á ferðatíma til félagsmanna RÍ, sem störfuðu fyrir varnarliðið. Upplýst var að greiðslum fyrir ferðakostnað til íslenskra starfsmanna varnarliðsins hafði verið komið á með ákvörðun kaupskrárnefndar árið 1955. Þá lá fyrir að kaupskrárnefnd hafði haft afskipti af ferðatímagreiðslum íslenskra starfsmanna varnarliðsins og úrskurðað árið 2000 að slíkar greiðslur til félagsmanna RÍ skyldu haldast óbreyttar frá því sem verið hafði. Með vísan til 6. gr. laga nr. 82/2000 um framkvæmd tiltekinna þátta í varnarsamstarfi Íslands og Bandaríkjanna, sem mælir fyrir um að kaupskrárnefnd úrskurði um starfskjör íslenskra starfsmanna varnarliðsins, var talið að varnarliðinu hefði ekki verið unnt að fella þessar greiðslur niður einhliða. Viðurkenningarkrafa RÍ, um að uppsagnir á þeim væru ólögmætar, var því tekin til greina.