Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lykilorð: Höfundarréttur / höfundaréttur
Deilt var um það hvort bótaskyld brot gegn höfundalögum hefðu átt sér stað með sölu stefnda á veggspjöldum íslensks listamanns þar sem teiknimyndapersónur og önnur fyrirbæri úr teiknimyndasögum um ævintýri Tinna eftir Hergé höfðu verið sett í íslenskt umhverfi og samhengi. Fallist var á að brotið hefði verið gegn bæði fjárhaglegum rétti og sæmdarrétti (rétti til nafngreiningar höfundar) við sölu verkanna. Var stefndi því dæmdur til greiðslu bæði skaða- og miskabóta en skaðabótakrafa stefnanda var þó lækkuð talsvert. Í því ljósi var stefnda aðeins gert að greiða hluta málskostnaðar stefnanda.
Stefndi var sýknaður af skaða- og miskabótakröfum stefnanda þar sem ekki var talið sannað að með notkun stefnda á heitinu „Sönn íslensk sakamál“ við birtingu hljóðbókarþátta í efnisveitu stefnda hefði verið brotið gegn réttindum stefnanda samkvæmt ákvæðum höfundalaga, laga um vörumerki og lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu.