Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Geymsla

Héraðsdómur Vesturlands birt 12. nóvember 2025

E-153/2025

Landslagnir ehf (Hilmar Gunnarsson lögmaður) gegn Gámaflutningum ehf (Magnús Pálmi Skúlason lögmaður)

Samkvæmt beiðni frá aðila sem villti á sér heimildir sótti gámaþjónustufyrirtæki 40 feta gám og flutti af lóð í Reykjavík og á geymslusvæði utan bæjarmarka. Eigandi lóðarinnar og gámsins kom ekki nálægt flutningsbeiðninni en frétti af flutningnum nokkrum dögum síðar og þegar hann kom að gámnum á nýjum geymslustað kvað hann mikil verðmæti hafa verið fjarlægð úr gámum. Stefndi hann flutningsfyrirtækinu og krafðist skaðabóta sem jafngiltu innkaupsverði þess búnaðar sem hann kvað hafa verið í gámnum en væri nú horfinn. Dómurinn taldi flutningsaðilann þurfa að bera ábyrgð með vísan til sakar starfsmanna hans á því tjóni sem eigandi gámsins kynni að hafa orðið fyrir. Eiganda gámsins lánaðist hins vegar ekki að mati dómsins að sanna fjártjón sitt og því varð niðurstaðan sýkna, en ekki þótti tækt að ákvarða bætur að álitum.