Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lykilorð: Fundafrelsi
Ákæruvaldið (
Jón H. B. Snorrason saksóknari)
gegn
Elínborgu Hörpu Önundardóttur (
Jón Þór Ólason lögmaður)
E var sakfelld fyrir valdstjórnarbrot samkvæmt 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga með því að hafa 11. mars 2019, á Austurvelli í Reykjavík, sparkað þrisvar sinnum í fætur lögreglumanns sem þar var við skyldustörf með þeim afleiðingum að hann fann fyrir eymslum. Í dómi Landsréttar kom fram að framburður lögreglumanna fengi stuðning í myndskeiði af atvikum og var talið sannað að E hefði af ásetningi viðhaft þá háttsemi sem greindi í ákæru. Þá gæti sú staðreynd að atvik gerðust í tengslum við mótmælaaðgerð á engan hátt réttlátt þá háttsemi að sparka í lögreglumann. E var auk þess sakfelld fyrir þrjú brot gegn 19. gr. lögreglulaga, það er með því að hafa þann 5. apríl 2019 óhlýðnast fyrirmælum lögreglu um að yfirgefa anddyri dómsmálaráðuneytisins er lögregla vísaði fólki brott þaðan, að hafa óhlýðnast fyrirmælum lögreglu um að yfirgefa vettvang og halda för sinni áfram er lögregla aðstoðaði almennan borgara í Austurstræti í Reykjavík þann 29. júlí 2019. Loks með því að hafa 19. mars 2019 óhlýðnast fyrirmælum lögreglu um að víkja frá aðalinngangi Alþingis er lögregla vísaði fólki á brott til að tryggja aðgengi að Alþingi. Um ákvörðun refsingar sagði meðal annars að valdstjórnarbrotið vægi langþyngst og að ákærða ætti sér ekki málsbætur varðandi það eða brotið í Austurstræti. Við ákvörðun refsingar vegna brotanna í dómsmálaráðuneytinu og fyrir framan Alþingi yrði á hinn bóginn að líta til þess að fyrir E vakti að standa vörð um réttindi hælisleitenda og það gerði hún með því að nýta á friðsaman hátt stjórnarskrárvarinn rétt sinn til mótmæla, þó að í þessum tilvikum hefði hún gengið lengra en heimilt var. Refsing E þótti hæfilega ákveðin fangelsi í tvo mánuði, bundin skilorði með þeim hætti sem greinir í hinum áfrýjaða dómi. Var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur, þar á meðal um sakarkostnað.