Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lykilorð: Frávísunardómur staðfestur

Hæstiréttur birt 19. desember 2022

55/2022

A16 fasteignafélag ehf (Jón Steinar Gunnlaugsson lögmaður) gegn Hróbjarti Jónatanssyni og Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Kristín Edwald lögmaður)

Kærður var dómur Landsréttar þar sem máli A ehf. á hendur H og S hf. var vísað frá héraðsdómi. Ágreiningur málsins fyrir Hæstarétti laut að því hvort A ehf. hefði lögvarða hagsmuni af því að fá efnisdóm í máli um viðurkenningu á óskiptri bótaskyldu H og S hf. vegna lögmannsstarfa H fyrir A ehf. Í dómi Hæstaréttar kom fram að þar sem málatilbúnaður A ehf. um ætlaða lögvarða hagsmuni hans í skilningi 2. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991 væri ekki í samræmi við áskilnað e-liðar 1. mgr. 80. gr. laganna yrði niðurstaða hins kærða dóms staðfest.

Hæstiréttur birt 11. janúar 2022

54/2021

A (Einar Þór Sverrisson lögmaður) gegn Persónuvernd (Einar Karl Hallvarðsson lögmaður)

A kvartaði til P vegna vinnslu persónuupplýsinga um hann hjá fyrrverandi vinnuveitanda sínum, B ses., í tengslum við uppsögn hans úr starfi. Með úrskurði P var ekki fallist á að B ses. hefði verið skylt að veita A upplýsingar um uppruna skráðra persónuupplýsinga um hann. Mál þetta höfðaði A gegn P og krafðist þess að fyrrnefndur úrskurður yrði ógiltur. Með dómi héraðsdóms var fallist á kröfur A. Í Landsrétti var málinu vísað frá héraðsdómi án kröfu. Í dómi Hæstaréttar kom fram að kröfu um ógildingu úrskurðarins hefði réttilega verið beint að P. Þá var vísað til þess að upphafleg kvörtun A hefði beinst að B ses. og þess meðal annars krafist að honum yrði veittur aðgangur að upplýsingum sem óumdeilt væri að voru í vörslum þess. B ses. hefði jafnframt átt aðild að málinu við meðferð þess hjá P og byggt á því að þær upplýsingar sem um ræddu væru mjög viðkvæms eðlis og að mikilvægt væri að virtur yrði sá trúnaður sem heitið hefði verið af hálfu þess gagnvart þeim einstaklingum sem veittu þær. Var því talið að B ses. ætti einstaklegra, beinna og lögvarinna hagsmuna að gæta af úrlausn um kröfu A. Þar sem A beindi kröfu sinni ekki að B ses. var fallist á niðurstöðu Landsréttar um að vísa málinu frá héraðsdómi án kröfu.