Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lykilorð: Frádráttur bóta

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. október 2022

E-2184/2019

A (Einar Gautur Steingrímsson lögmaður) gegn Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúsi ohf. (Heiðar Örn Stefánsson lögmaður) og Sinfóníuhljómsveit Íslands (Sigrún Ingibjörg Gísladóttir lögmaður)

Eftir dóm Landsréttar um viðurkenningu á bótaskyldu stefndu vegna slyss stefnanda náðu aðilar málsins sáttum um bætur vegna tímabundins atvinnutjóns, þjáningarbætur og bætur vegna varanlegs miska og varanlegrar örorku. Í máli þessu var fallist á kröfu stefndu um frádrátt af bótum vegna varanlegrar örorku og upphafsdag vaxta og dráttarvaxta.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. mars 2022

E-7833/2020

A (Steingrímur Þormóðsson lögmaður) gegn TM tryggingum hf. og B til vara (Hjörleifur Kvaran lögmaður)

Hið stefnda vátryggingafélag var dæmt til að greiða stefnanda frekari bætur vegna tímabundins atvinnutjóns í kjölfar vinnuslyss um borð í togara. Taldist uppgjör bóta vegna þess þáttar ekki hafa farið réttilega fram þegar litið væri til ákvæða sjómannalaga. Sýknað var hins vegar af kröfu stefnanda um frekari bætur vegna varanlegs miska, varanlegrar örorku og tapaðra lífeyrisréttinda og þótti tjón stefnanda að þessu leyti að fullu bætt. Var því og hafnað að ranglega hefði verið staðið að frádrætti við bótauppgjör aðila.