Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lykilorð: Fjárhættuspil

Landsréttur birt 19. október 2018

364/2018

Guðlaugur Jakob Karlsson (Þórður Heimir Sveinsson lögmaður, 2. prófmál) gegn íslenska ríkinu (Ólafur Helgi Árnason lögmaður)
Lykilorð: Fjárhættuspil. Gjafsókn.

G höfðaði mál á hendur Í til heimtu skaða- og miskabóta vegna tjóns sem G kvaðst hafa orðið fyrir og sem rekja mætti til þess að tilgreindum aðilum hefði verið heimilað að reka spilakassa með lögum nr. 13/1973 og 73/1994 í andstöðu við 183. gr. almennra hegningarlaga. Í hinum áfrýjaða dómi, sem Landsréttur staðfesti með vísan til forsendna, kom fram að umrædd lög væru sérlög andspænis almennum hegningarlögum og væru einnig yngri en ákvæði 183. gr. almennra hegningarlaga. Gengju umrædd lög því framar almennum hegningarlögum. Ekki var fallist á það með G að Í hefði með saknæmum og ólögmætum hætti valdið honum tjóni né heldur að skilyrði bótaskyldu væru fyrir hendi á öðrum grundvelli en almennu sakarreglunnar. Var Í því sýknaður af kröfu G um greiðslu skaðabóta. Þá hefði G ekki tekist að sýna fram á að Í hefði valdið honum tjóni með ólögmætri háttsemi eða háttsemi sem annars yrði að telja ólögmæta meingerð gegn honum og var Í því einnig sýknaður af kröfu um greiðslu miskabóta.

Hæstiréttur birt 15. desember 2016

829/2015

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn Y (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður), Óskari Aðils Kemp (Sigmundur Hannesson hrl), X (Ólafur Eiríksson hrl) og Þ áhugamannafélagi (Heiðar Ásberg Atlason hrl)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

X, Y og Ó voru sakfelld fyrir brot gegn 183. og 184. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og fyrir peningaþvætti samkvæmt 264. gr. sömu laga með því að hafa á tilteknu tímabili rekið fjárhættuspil og tekið, nýtt eða aflað sér ávinnings með því að reka það í atvinnuskyni og komið öðrum til þátttöku í þeim í húsnæði sem félagið Þ hafði á leigu en ákærðu voru í forsvari fyrir félagið. Var refsing Y ákveðin fangelsi í 18 mánuði en fullnustu 15 mánaða refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í tvö ár. Var refsing X og Ó ákveðin fangelsi í 9 mánuði en þar sem þáttur þeirra hefði verið mun veigaminni en Y og þar sem málsmeðferð hefði dregist verulega var fullnustu refsingu þeirra frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá voru nánar tilteknir munir og fjármunir gerðir upptækir.

Hæstiréttur birt 16. desember 2004

214/2004

Ákæruvaldið (Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari) gegn Brynjari Valdimarssyni (Jón Magnússon hrl)

B var ákærður fyrir að hafa staðið fyrir rekstri fjárhættuspils og veðmálastarfsemi í húsnæði sem hann hafði á leigu. Allir fjármunir vegna rekstrarins fóru í gegnum reikning B og var veltan veruleg. Var talið að B hafi staðið að starfseminni í atvinnuskyni, enda þótt hann hafi haft aðra atvinnu hluta ársins 2002. Var B sakfelldur fyrir þau brot sem honum voru gefin að sök í ákæru og dæmdur til fjögurra mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar.