Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Farmbréf

Hæstiréttur birt 21. febrúar 2008

236/2007

Tryggingamiðstöðin hf (Guðmundur Pétursson hrl) gegn Íslensku umboðssölunni hf (Anton Björn Markússon hrl)
Málaflokkur: Vátryggingaréttur

Í hf. taldi sig vera að selja nafngreindu fyrirtæki á Ítalíu gám af fiskflökum og gaf út reikning vegna viðskiptanna þar sem greiðsluskilmálar voru tilgreindir „cash against documents“ með afhendingarskilmálana „CIF Rotterdam“. Félagið afhenti farmflytjanda vöruna og keypti flutningstryggingu hjá T hf. í samræmi við afhendingarskilmálana. Sá sem Í hf. taldi vera kaupanda vörunnar reyndist ekki hafa pantað hana heldur aðili sem misnotað hafði nafn hans. Sá aðili komst einnig yfir frumrit vöruskjala og fékk vöruna afhenta sér gegn framvísun þeirra í vörugeymslu farmflytjandans í Rotterdam. Í hf. krafðist greiðslu bóta á grundvelli vátryggingarinnar vegna þess tjóns sem félagið hafði orðið fyrir af þessum sökum. Í dómi héraðsdóms, sem staðfestur var með vísan til forsendna, var litið svo á að farmurinn hefði enn þá verið í vörslum farmflytjanda þegar honum var stolið. Samkvæmt skilmálum vátryggingarinnar var ekki talið að hún hefði þá verið fallin niður. Því var fallist á að T hf. bæri að bæta tjón Í hf. í samræmi við skilmála vátryggingarinnar.